Englendingurinn Darkness Vlad Tepes lífir lífi vampíru – Dreymir um samþykki meðborgara sinna
Darkness Vlad Tepes, 25 ára gamall Englendingur, gæti við fyrstu sýn virst nokkuð venjulegur ungur maður sem hefur áhuga á þungarokki og fatastíl þeirra sem oft eru kallaðir gotharar. Það er hann ekki. Tepes sefur í sérsmíðaðri líkkistu og drekkur blóð úr geitum, kindum og öðrum búfénaði.
Englendingurinn blóðþyrsti, sem tók upp nafnið Darkness, eða myrkur, fyrir nokkrum árum, á sér þann draum að samborgarar hans taki honum eins og hann er þrátt fyrir að hann lifi lífi vampíru. Segist hann verða fyrir aðkasti sökum lífsstílsins sem hann tók upp fyrir þrettán árum.
„Þótt ég sé vampíra þá vil ég að fólk komi fram við mig eins og aðra. Ég fór á krá með tveimur félögum mínum og var þá spurður hvort ég hefði verið misnotaður í æsku. Ég skammaðist mín svo fyrir að vera spurður svo persónulegrar spurningar vegna þessa lífsstíls. Allir hafa sinn karakter og mér finnst ekki rétt að ég sé ofsóttur vegna míns,“ segir Tepes.
Tepes, sem hefur búið í Blackburn síðustu fjögur ár, hefur líkt sinni slæmu reynslu við sögu Sophie Lancaster, tvítugrar stúlku frá Englandi sem var myrt fyrir að vera klædd eins og gothari. Móðir Sophie hefur lýst opinberlega yfir stuðningi við Tepes.
Líkkista vampírunnar vegur 25 kíló en hann viðurkennir að hvítlaukur geri honum ekki mein. Einnig þoli hann vel sólarljós og aldrei hafi komið til þess að hold hans bráðni og afmyndist í góðu veðri.
„Hluti af því að vera vampíra felst í þeirri trú minni að líkami minn sé lifandi en sál mín dauð. En ég held að fólk misskilji vampírur vegna kvikmynda og bóka um til dæmis Twilight-seríuna og Drakúla.“