fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024

Bill lætur renna í bað

Hugguleg kvöldstund kveikti óhugnanlegar spurningar – Teresa vildi Bill, Bill vildi Teresu … feiga

Kolbeinn Þorsteinsson
Laugardaginn 6. febrúar 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjúkrunarfræðingurinn Bill Wolfe bjó í Henderson í Texas með eiginkonu sinni Teresu. Hjónin höfðu alla tíð verið náin og vinir þeirra sögðu hjónabandið friðsælt með eindæmum.

Þann 3. apríl, 2004, kom Bill óvenju snemma heim úr vinnunni rétti Teresu rómantískt kort. Teresa leit á hann spurnaraugum og opnaði kortið. „Ég vona að þú vitir að hvert andartak sem við getum átt saman er mér svo mikils virði“ stóð í því. 

„Mig langaði bara að koma heim og eiga rólegt kvöld með þér, elskan mín,“ sagði Bill og í ljósi þess innileika sem einkennt hafði hjónabandið kom þetta Teresu ekki spánskt fyrir sjónir.

Dekrað við Teresu

Bill sló sjálfum sér við þetta kvöld; sá um matseld, dekkaði borðið, kveikti á kertum og hugguleg tónlist fullkomnaði andrúmsloftið.

Þegar upp var staðið bauðst hann til að láta renna í bað fyrir Teresu svo hún gæti látið líða almennilega úr sér þreytuna og slakað vel á. 

Teresu leist vel á það og þar sem hún lá í ylvolgu baðvatninu fannst henni kvöldið fullkomnað og velti því ekki fyrir sér af hverju útvarpið, sem stillt var á hugljúfa stöð, var ekki á sínum venjulega stað heldur á bekk nærri baðkarinu.

Snarræði bjargar

Þarna voru þau hjónin; hann sitjandi á körfu fyrir óhreinan þvott og hún værðarleg í freyðibaði, og mösuðu um allt og ekkert. Bill teygði skyndilega út handleggina og eins og fyrir klaufaskap rakst hann í útvarpið sem endasentist í boga í átt að baðkarinu. Með ótrúlegu snarræði tókst Teresu að grípa það áður en það skall í vatnið.

En viðbrögð Bills voru á annan hátt en ætla hefði mátt; í stað þess að varpa öndinni af létti stóð hann upp og strunsaði í fússi út úr baðherberginu.

Teresa leggst í rannsóknir

Hegðun Bills kom Teresu í opna skjöldu og hún velti fyrir sér hví hann brást svo reiður við. Þá rifjuðust upp fyrir henni ýmis önnur, nýleg tilvik – Bill hafði reyndar tíðum verið eins og snúið roð í hundskjaft undanfarna mánuði.
Óhugnanleg spurning vaknaði: Vildi Bill hana feiga? Hugmyndin var fáránleg, fannst Teresu, og hún nánast hristi hausinn, undrandi á eigin hugarflugi.

En næsta dag lónaði spurningin enn í huga hennar og hún ákvað að kanna nokkur atriði.

Hinn sári sannleikur

Teresa greip til þess ráðs að athuga hvað ástkær eiginmaður hennar hefði bardúsað á netinu. Sér til mikillar skelfingar sá hún að hann hafði, þremur dögum fyrr, leitað upplýsinga um hvernig best væri að standa að morði með vatni og rafmagni, einkum og sér í lagi þar sem hægt væri að notfæra sér baðkar.

Bill hafði heimsótt þrjár vefsíður þar sem fjallað var ítarlega um þess konar morð og eina síðu að auki þar sem kyrking í baðkari var útlistuð.

Teresa fann líka kvittun fyrir einu dúsíni af rósum sem hún hafði aldrei fengið.
Hún beið ekki boðanna og setti sig í samband við lögreglu hið snarasta.

Há líftrygging

Við rannsókn lögreglunnar kom margt miður geðslegt í ljós varðandi Bill Wolfe. Á meðal þess var að fimm mánuðum áður – um svipað leyti og hegðun hans breyttist – hafði hann keypt líftryggingu handa Teresu að henni fornspurðri. Líftryggingin hefði fært honum 250.000 Bandaríkjadali í aðra hönd ef hún gæfi upp öndina.

Bill var handtekinn og ákærður. Hann gerði samning við ákæruvaldið og játaði sig sekan um þriðju gráðu morðtilraun (hvað sem það nú merkir). Fyrir vikið fékk hann fjögurra til tíu ára fangelsisdóm auk þess sem honum var gert að greiða Teresu 10.000 Bandaríkjadali.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Viktor Bjarki braut hjörtu Valsara með marki á lokamínútu leiksins – Sjö stigum á eftir Víkingi

Viktor Bjarki braut hjörtu Valsara með marki á lokamínútu leiksins – Sjö stigum á eftir Víkingi
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Bresku Rúanda-lögin koma illa niður á Írum – Setja neyðarlög

Bresku Rúanda-lögin koma illa niður á Írum – Setja neyðarlög