Ríkisendurskoðun ætlar að gera sína fyrstu stjórnsýsluúttekt á RÚV í 24 ár. Meðal þess sem verður skoðað er samkeppnisrekstur stofnunarinnar. Sagt er að úttektin sé gerð að frumkvæði Ríkisendurskoðunar sjálfrar, hugsanlega eftir ábendingar um verktakagreiðslur og ógagnsæjar mannaráðningar.
Það verður að teljast líklegt að stjórnarliðar, þá helst Sjálfstæðismenn muni nota skýrsluna til að ná RÚV af auglýsingamarkaði.