fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Segir Guðmund Inga ekki á leið í annan flokk og mýtu að hún sé að reyna að losa sig við Flokk fólksins – „Hún er real hún Inga“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 09:00

Kristrún Frostadóttir. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er einhver alger mýta að ég sé að reyna að losa mig við Flokk fólksins“, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. „Inga, rétt eins og ég, hefur bara sína kosti og galla. Það sem hafa verið hennar helstu kostir, stundum fylgja svona ákveðin ytri áhrif. Hún bara segir hlutina eins og þeir eru, hún er svolítið filterslaus.“

Kristrún spyr í Spjallinu með Frosta Logasyni hvort almenningur sé ekki ánægður með að fólk mæti til leiks og segi hlutina eins og þeir eru.

„Sé ekki með þetta elítuorðbragð, láti gamminn geisa. Hún er real hún Inga.“

Frosti segist kunna vel við Ingu, en hún sé svolítið kostnaðarsöm, high maintenance eins og sagt er.

„Ég skal segja þér það án þess að nefna nein nöfn, heldur þú að stjórnmálamenn séu ekki almennt svolítið kostnaðarsamir. Það er til svo mikið af prímadonnum í pólitík, fólk ber það bara mismikið á sér eftir því hvað gerist bak við lokaðar dyr inn í þinginu eða annað. Guð minn góður. Við Inga erum að sumu leyti ólíkar, hún er í grunninn jafnaðarmaður, var í Samfylkingunni á sínum tíma, stofnaði Flokks fólksins með Guðmundi Inga eftir að hafa verið ósátt við hvernig Samfylkingin beitti sér eftir hrun. Ég ber bara mikla virðingu fyrir því. Hún hefur heitið því að bæta kjör fátækasta fólksins í landinu. Hún hefur persónulega reynslu af því.“

Kristrún segir Ingu vera aðeins öðruvísi en hinn hefðbundni stjórnmálamaður, en hún viti ekki betur en að kallað hafi verið eftir því.

„Við náum mjög vel saman ég og Inga. Ég hef sagt það og þetta er ekki bara lína upp á PR. Alveg eins og þegar ég fór í þetta starf og byrjaði að ferðast um landið og það breytti mér. Það hefur breytt mér að vinna með Ingu. Maður fyllist auðmýkt að vera í kringum hana, hvernig hún talar um hlutina og hvernig hún breuur fyrir það. Það er eins og með alla, eins og með fjölskyldumeðlimi. Það koma stundum upp tímar þar sem fólk er ósammála um einhverja hluti.“

Aðspurð um hvort hún hafi rætt við Guðmund Inga Kristinsson þingmann, sem nýlega sagði sig úr Flokki fólksins svarar Kristrún játandi.

„Hann fullyrti við mig að hann styður ríkisstjórnina og hann er ekki að ganga til liðs við minnihlutann. Hann er ekki að ganga út af því hann er ósáttur við ríkisstjórnina. Þetta er mál sem er innan Flokks fólksins. Ég get ekki sagt til um það, ég er ekki inni í öllum málum sem fara þeirra á milli.“

Aðspurð um hvort komi til greina að Guðmundur Ingi gangi til liðs við annan flokk sem gæti komið í ríkisstjórn segir Kristrún engar breytingar framundan á ríkisstjórninni.

„Við vinnum mjög vel saman. Þetta er einhver samkvæmisleikur sem fólk hefur gaman af. Mér líður bara vel í þessari ríkisstjórn. Ég er ekki að leita að neinni leið til að gera breytingar á Flokki fólksins, nema síður sé. Þau hafa styrkt okkur að öllu leyti.

Segir hún stóran hluta mála Samfylkingarinnar vera jafnaðarmál, Flokkur fólksins nálgist þau aðeins með aðeins öðrum hætti. „Og það hefur bara styrkt okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“