fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Kynning

Fáheyrð eftirspurn eftir heyrnartólum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 23. mars 2026 18:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að skammt sé liðið á árið eru þegar góðar líkur á að nýja Evolve3‑heyrnartólalínan frá Jabra verði meðal þeirra mest spennandi sem koma á markað árið 2026. Tæknimiðlar á borð við CNET, Headset Advisor, TechRadar og Notebookcheck hafa þegar birt fyrstu umsagnir og skilaboðin eru skýr: þetta eru heyrnartól sem gætu orðið leikbreytir á vinnumarkaðnum.

CNET bendir á að Jabra hafi tekist að ná fram óvenju góðu jafnvægi milli skýrleika í tali, hágæða ANC‑hljóðeinangrunar og þæginda og það allt án hefðbundins boom‑arms, sem áður þótti ómissandi fyrir vinnuheyrnartól. Notebookcheck.net tekur í sama streng og segir Evolve3 vera „fullkomin fyrir nútíma vinnuumhverfi“ þar sem fjarfundir, opið rými og hreyfanleiki eru alls ráðandi. Headset Advisor lýsir Evolve3‑seríunni sem „næstu kynslóð Bluetooth‑tækni“ sem byggir á vinsælu Evolve2‑línunni, en bætir verulega við hvað varðar AI‑vinnslu, hljóðgreiningu og heildarhönnun. TechRadar hrósar sérstaklega hönnuninni og segir Evolve3 vera „heyrnartól sem sameina vinnuhæfni og lúxus‑hljóð í einum pakka“, og gætu því höfðað jafnt til fyrirtækja sem neytenda.

Eftirspurn slegið fyrri met

„Við sáum strax í forpöntunum að þetta yrði vinsæl vara en  þessi áhugi hefur farið langt fram úr björtustu vonum,“ segir Kristinn Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK, sem er dreifingaraðili Jabra á Íslandi. „Eftirspurnin hefur einfaldlega slegið öll met hjá okkur. Við höfum vart undan,“ bætir hann við. „ Þá er samhljómur í umsögnum tæknimiðla sem gerir það að verkum að margir í tæknigeiranum telja að Evolve3 hafi burði til að verða meðal heyrnartóla ársins 2026.” Samkvæmt Kristni eru það einkum fjórir þættir sem skýra vinsældirnar:

  • Ný ClearVoice AI‑tækni sem tryggir skýrt tal, jafnvel í opnum vinnurýmum.
  • Öflug ANC‑dempun sem dregur úr truflunum og eykur einbeitingu.
  • Rafhlöðuending allt að 120 klukkustundir, sem er tvöfalt meiri en í mörgum sambærilegum heyrnartólum á markaði.
  • Hönnun og þægindi sem gera langa fundadaga mun léttari.

„Vinnurými á Íslandi hafa á síðustu árum þróast hratt í átt að opnum rýmum, sameiginlegum vinnusvæðum, rafrænum samskiptum og fjarfundum. Þar reynast Evolve3 koma einstaklega vel út,“ segir Kristinn.

  • ANC‑tæknin sé sérstaklega sterk í almennu vinnurými.
  • Bluetooth‑samband er mjög stöðugt, sem hentar þegar notendur eru á hreyfingu.
  • Talgæðin eru stöðug og skýr í Teams og símtölum.

„Við sjáum þarna komin á markað heyrnartól sem sameina bæði að vera fyrsta flokks fyrir nútíma vinnuumhverfi en á sama tíma hefur Evolve3 fengið fádæma lof fyrir frábæra hönnun og það er meðal annars ástæða fyrir þeim frábæru viðbrögðum sem við höfum fundið hjá viðskiptavinum okkar,“ segir Kristinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Viktor Nói í FH
Kynning
08.11.2024

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla

Frumsýna Audi Q6 á morgun – Kaflaskil í hönnun rafbílsins vinsæla
Kynning
06.11.2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024

TIME útnefnir ökumannsskilningskerfi Volvo EX90 eina af bestu uppfinningum ársins 2024
Kynning
18.06.2024

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær