fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Fréttir

Formaður norska Hægriflokksins vill Noreg inn í Evrópusambandið – Breytt heimsmynd

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 20. mars 2026 15:30

Söreide segir allt breytt frá árinu 1994 þegar Norðmenn höfnuðu inngöngu með litlum mun. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ine Eriksen Söreide, formaður norska Hægriflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að Noregur ætti að ganga í Evrópusambandið. Í núverandi heimsmynd dugi ekki lengur að vera með EES samning.

„Að mínu mati, og flokksins míns, er hagsmunum okkar best borgið með því að vera fullgildir meðlimir í Evrópusambandinu,“ sagði Söreide, sem var kjörin formaður flokksins í síðasta mánuði, í viðtali í Brussel í gær. En flokkurinn er í stjórnarandstöðu við Verkamannaflokkinn.

Norðmenn hafa í tvígang hafnað aðild að Evrópusambandinu, það er árið 1972 og 1994. Árið 1962 komu Frakkar í veg fyrir inngöngu Noregs.

Sjá einnig:

Vill Noreg inn í Evrópusambandið á meðan það er enn þá gluggi til að ná góðum samning – Norðmenn einangraðir ef Ísland fer inn

Söreide segir að margt hafi breyst síðan árið 1994. Í dag séu hagsmunir Noregs með fullri aðild líkt og þeirra 27 ríkja sem eru þar inni. Þessir hagsmunir hafi til að mynda birst í deilum Noregs við bandalagið um stáltolla. Þar hafi það komið í bakið á Norðmönnum að vera ekki aðilar að bandalaginu. Landið eigi aðgang að innri markaði Evrópu en sé utan tollamúranna og nú sé tollastríð hafið í heiminum.

„Ef Ísland ákveður að halda viðræðum áfram þá breytist allt,“ sagði Söreide. „Ég er ekki að segja að ákvörðun Íslendinga muni breyta afstöðu Norðmanna, en þetta getur valdið breytingum á kerfunum sem gerir það erfiðara að vera fyrir utan bandalagið.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Telja að Landsréttur hafi átt að meta það hvort 13 stúlka hefði þroska til að samþykkja kynlíf með 21 árs manni

Telja að Landsréttur hafi átt að meta það hvort 13 stúlka hefði þroska til að samþykkja kynlíf með 21 árs manni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starmer fær hjálp úr óvæntri átt – Segir Trump barnalegan

Starmer fær hjálp úr óvæntri átt – Segir Trump barnalegan