fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Handtóku mann sem braust inn til flóðhestsins fræga – Mæðgurnar fengu áfallahjálp

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. mars 2026 06:30

Maðurinn var inni í búrinu í tvær mínútur áður en starfsfólk tók eftir honum. Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Tælandi hefur handtekið mann sem braust inn til Moo Deng, hins fræga flóðhestskálfs í dýragarðinum Khao Kheow Open Zoo. Maðurinn virtist vera að taka myndir af Moo Deng og móður hennar.

Breska blaðið The Independent greinir frá þessu.

Smáflóðhesturinn Moo Deng verður tveggja ára í sumar. Hún sló í gegn haustið 2024 þegar myndbönd dýragarðsstarfsfólks fóru á flug á samfélagsmiðlum. Hefur hún gjarnan verið kölluð „mesta krútt heims.“

Skuggabaldur með spjaldtölvu

Samfara vinsældum hennar á samfélagsmiðlum þá hefur dýragarðurinn grætt mikið á frægð hennar. En gestir koma, jafn vel frá öðrum heimsálfum, gagngert til þess að líta hana augum.

Nú er svo komið að ágangur fólks er byrjað að ógna kálfinum og fjölskyldu hennar. Á þriðjudag var maður handtekinn eftir að hafa brotist inn í búrið til hennar.

Sjá einnig:

Mesta krútt heims eins árs – „Ég bara elska hana svo mikið“

Að sögn dýragarðsstjórans Naronqwit Chodchoy er maðurinn tælenskur ríkisborgari, karlmaður sem laumaðist inn í búrið á meðan starfsfólk og aðrir gestir sáu ekki til. Maðurinn var klæddur í grænan bol og brúnar stuttbuxur, með svarta húfu og sólgleraugu eins og sást í öryggismyndavélum.

Gekk hann að Moo Deng og móður hennar Jona með spjaldtölvu á lofti. Væntanlega að taka upp myndefni af þeim.

Krefjast þyngstu refsingar

Að sögn herra Chodchoy var hinn grunaði inni í búrinu í um tvær mínútur áður en starfsfólkið tók eftir honum. Var strax hringt á lögregluna en maðurinn gerði enga tilraun til þess að flýja.

Lögreglan kom á staðinn og handtók manninn. Hann hefur nú verið ákærður fyrir að fara inn í búrið í leyfisleysi. Þá íhugar dýragarðurinn að krefjast þyngstu refsingar, enda vill hann ekki að það myndist fordæmi fyrir því að gestir valsi inn í búr dýranna.

Að sögn Chodchoy reyndi maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, ekki að snerta Moo Deng eða móður hennar. En engu að síður virtist þeim vera mjög brugðið við þessa óvæntu og óvelkomnu heimsókn og hafa fengið aðhlynningu dýralæknis.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Verður ákærður fyrir manndráp

Mannslát á Kársnesi: Verður ákærður fyrir manndráp
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði
Fréttir
Í gær

Deilt um hvort það sé stórkostlegt gáleysi að aka bifhjóli á lokuðum vegi og ofan í skurð

Deilt um hvort það sé stórkostlegt gáleysi að aka bifhjóli á lokuðum vegi og ofan í skurð
Fréttir
Í gær

„Þegar refsing eins verður að refsingu fyrir heila fjölskyldu má fjölskyldan ekki gleymast“

„Þegar refsing eins verður að refsingu fyrir heila fjölskyldu má fjölskyldan ekki gleymast“