fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Ísland.is sagt ekki uppfylla EES-reglur

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. mars 2026 15:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent íslenskum stjórnvöldum rökstutt álit vegna annmarka á miðlægri stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð hins opinbera. Er þar átt við vefsvæðið Ísland.is sem ESA segir að uppfylli ekki reglur EES um að vera aðgengileg þjónustuaðilum frá öðrum EES-ríkjum.

Segir í tilkynningu frá ESA að í hinurökstudda áliti sé óskað eftir því að Ísland geri viðeigandi breytingar á miðlægri stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð sinni.

Stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð sé ætlað að gera einstaklingum og þjónustuveitendum kleift að veita þjónustu í öðrum EES-ríkjum. Þær nýtist í mörgum atvinnugeirum, þar á meðal í ferðaþjónustu og byggingastarfsemi sem og einstaklingum með lögvernduð starfsheiti. Tilgangur slíkrar miðstöðvar sé að gera þjónustuveitendum kleift að ljúka allri opinberri skráningu og viðurkenningu á starfsréttindum með rafrænum hætti á einni vefsíðu.

Kröfur

Að mati ESA hefur Íslandi ekki tekist að koma á fót fullnægjandi opinberri þjónustumiðstöð fyrir landið en vefsíðan sem sögð er vera það (Ísland.is) uppfylli ekki kröfur EES-reglna, þar á meðal vegna þess að þar sé ekki að finna nauðsynlegar upplýsingar fyrir þjónustuaðila frá öðrum EES-ríkjum.

Skortur á slíkri vefsíðu þýði að notendur verði að fara í gegnum mikið efni á mismunandi vefsíðum reknum af ólíkum aðilum til að finna þær upplýsingar sem leitað sé eftir.

Segir enn fremur í tilkynningunni að ESA hafi opnað mál að eigin frumkvæði árið 2020. Formlegt áminningarbréf hafi sent Íslandi í mars 2023 þar sem fram hafi meðal annars komið að með því að hafa ekki komið á fót vefsíðu sem þjónaði sem miðlæg stafræn upplýsinga- og þjónustumiðstöð hefði Ísland ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt EES-samningnum.

Rétt sé að taka fram að íslenska ríkið hafi náð ákveðnum framförum við að koma íslensku þjónustumiðstöðinni á laggirnar. Hins vegar vanti enn mikilvægar upplýsingar og uppbygging Ísland.is sé með þeim hætti að erlendum þjónustuveitendum sé ekki ljóst að vefurinn sé íslenska þjónustumiðstöðin.

Rökstutt álit sé annað skrefið í formlegu brotaferli ESA. Íslensk stjórnvöld hafi nú tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að því loknu geti ESA ákveðið hvort vísa eigi málinu til EFTA-dómstólsins.

Hægt er að lesa ákvörðun ESA hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast

Kynferðislega brenglaður raðmorðingi á leið úr fangelsi í Þýskalandi – Vildi að afmynduð líkin myndu finnast
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Færeyingur sem berst í Úkraínu biður um aðstoð

Færeyingur sem berst í Úkraínu biður um aðstoð
Fréttir
Í gær

Konu stefnt til greiðslu skuldar – Seldi bílinn áfram í stað þess að borga hann

Konu stefnt til greiðslu skuldar – Seldi bílinn áfram í stað þess að borga hann
Fréttir
Í gær

Hjón ákærð fyrir fjárdrátt og peningaþvætti – Sögð hafa selt bíla í umboðssölu en ekki skilað kaupverðinu

Hjón ákærð fyrir fjárdrátt og peningaþvætti – Sögð hafa selt bíla í umboðssölu en ekki skilað kaupverðinu