fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 09:08

Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna hópárásar í Túnunum í Reykjavík á þriðjudagsnótt. Samkvæmt heimildum DV mæltu þrír Íslendingar þar sér mót við Palestínumenn til að innheimta peningaskuld. Hittist hópurinn utandyra og var innheimtutilraunum svarað með grófu ofbeldi. Voru tugir manna á vettvangi þegar átökin hófust, flestir Palestínumenn. Einn Íslendingur er með alvarlega áverka eftir árásina en hinir tveir sluppu betur.

Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að fjórir hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags en einn í vikulangt gæsluvarðhald. Árásin er sögð hafa verið lífshættuleg:

„Fimm karlar voru í gærkvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegi líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags, en tilkynning um málið barst lögreglu á öðrum tímanum í fyrrinótt. Fjórir mannanna voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags og sá fimmti til miðvikudags í næstu viku. Þeir eru taldir hafa ráðist að þremur mönnum og slasaðist einn þeirra sýnu mestu, en sá var fluttur á Landspítalann og síðan færður þar á gjörgæsludeild. Hinir tveir slösuðust minna, en árásin var lífshættuleg. Upphaflega voru sjö menn handteknir vegna málsins, en tveimur þeirra hefur verið sleppt úr haldi lögreglu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf
Fréttir
Í gær

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“