fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Ákært vegna alvarlegrar líkamsárásar á Vopnafirði

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 09:00

Frá Kaupvangi á Vopnafirði. Mynd: Google Maps.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir menn á þrítugsaldri, annar frá Akureyri og hinn frá Þórshöfn, hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði, aðfaranótt sunnudagsins 14. júlí árið 2024.

Þeir eru sakaðir um að hafa veist í sameiningu að manni á bílastæði fyrir utan Kaupvang á Vopnafirði, annar sparkaði ítrekað í höfuð hans en hinn í líkama hans, með þeim afleiðingum að árásarþoli missti meðvitund og hlaut heilahristing, bólgur á vör, rýrnað tannhold frá rót einnar tannar og glerungsbrot á fimm tönnum.

Brotaþoli krefst rúmlega tveggja milljóna króna í skaða- og miskabætur.

Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Austurlands, á Egilsstöðum, þann 19. mars næstkomandi. Verða þá lögð fram gögn í málinu og dagsetning aðalmeðferðar ákveðin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf
Fréttir
Í gær

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“