fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

„Með hálfum huga knúði ég dyra á húsi Davíðs í ágúst 2019“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 13. mars 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri minnist Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóra, með hlýjum orðum. Ásgeir skrifaði minningarorð um Davíð í Morgunblaðið í dag og birtir hann þau einnig á Facebook- síðu sinni.

Davíð verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju klukkan 13:00 í dag. Útförin er opinber, öllum opin, meðan húsrúm leyfir og verður henni sjónvarpað í beinni útsendingu á RÚV.

Ásgeir segir meðal annars frá því þegar hann hitti Davíð skömmu eftir að hann var skipaður seðlabankastjóri.

„Með hálfum huga knúði ég dyra á húsi Davíðs í ágúst 2019. Ég var nýskipaður seðlabankastjóri, vel minnugur þess m.a. að húseigandinn hafði fyrstur kallað eftir sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í aðdraganda fjármálakreppunnar. Það féll nú í minn hlut að framkvæma sameiningu þessara stofnana eftir samþykkt nýrra laga um Seðlabankann.“

Ásgeir rifjar upp að Ástríður, eiginkona Davíðs, hafi tekið á móti honum og leitt hann inn í stofu.

„Davíð var hinn alúðlegasti. Umræðan varð strax fjörleg og teygði sig brátt frá bankamálum og að bókmenntum og sögu. Áður en ég vissi af voru þrír tímar liðnir. Mér fannst við strax ná góðri persónulegi tengingu – enda báðir bersöglir og opnir að eðlisfari. Og við áttum eftir að spjalla oft og lengi síðan í boði hvor annars.

Hafði skýra stefnu

Ásgeir segir að Íslendingar hafi löngum haft persónulega sýn á eigin sögu.

„Kannski er það þrjóska smáþjóðar sem neitar að viðurkenna að hún er leiksoppur ytri aðstæðna. Sturlunga – til dæmis – lýsir síðustu árum þjóðveldisins sem pólitískum harmleik þar sem úrlausn mála færðist frá Alþingi, til flokkadrátta og vígaferla þar sem virðing hvarf fyrir friðhelgi persóna. Þessa sögu hefði örugglega verið hægt að skrifa sem efnahagssögu – með vísan til hnignunar í utanríkisviðskiptum sem stjórnmálastéttin átti erfitt með að bregðast við.“

Ásgeir segir að persóna Davíðs hafi að sönnu verið svo stór að hún geti byrgt sýn á það mikla dagsverk sem liggur eftir hann.

„Í tíð hans sem forsætisráðherra urðu stórstígar efnahagslegar framfarir. Þegar hann lét af embætti 2003 var ríkissjóður nánast skuldlaus og með hæstu mögulegu lánshæfiseinkunn AAA. Þessi árangur var afrakstur skýrrar stefnu strax í byrjun um einstaklingsfrelsi og inngöngu Íslands í EES. Það er síðan kaldhæðni örlaganna að þessi háa lánshæfiseinkunn varð á sinn hátt kveikjan að fjármálabólu.“

Þakklátur fyrir kær persónuleg kynni

Ásgeir rifjar svo upp að í september 2008 hafi Davíð lagt til að stofnuð yrði þjóðstjórn allra flokka til þess að mæta þeim mikla stormi sem brostið hafði á.

„Illu heilli varð það ekki. Kannski hefðum við þá komist hjá nýrri Sturlungatíð, nýjum hjaðningavígum með persónulegri tortryggni og heiftrækni. Og allir íslenskir stjórnmálaleiðtogar og æðstu embættismenn, sem setið hafa síðan, hafa fundið á eigin skinni. Verra er þó að eltingarleikur á eftir sökudólgum skilar litlum eða engum árangri til framtíðar. Honum verður aðeins náð með endurbótum á stofnanagrunni og umgjörð efnahagslífsins.“

Ásgeir segir að ógæfa Íslands í aðdraganda fjármálakreppunnar hafi meðal annars verið sú að engin ein stofnun hafði forræði á fjármálastöðugleika með umboð til aðgerða.

„Þess vegna var sameining Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins 2020 svo mikilvæg. Bankastjórar Seðlabankans voru dregnir fram sem sökudólgar, jafnvel þótt bankinn hefði haft takmarkaðar heimildir til þess að grípa inn í atburðarásina. Brottrekstur þeirra þriggja vorið 2009 er þó alls ekki þeirra einkamál heldur snertir sjálfstæði og trúverðugleika Seðlabankans sem stofnunar fram í tímann. Það skiptir mig því miklu að forverar mínir í embætti njóti sannmælis og að rétt fordæmi séu gefin.“

Ásgeir segir að lokum að hafi verið honum mikil ánægja að fá Davíð inn í Seðlabankann á ný í bankastjóratíð sinni og njóta ráða hans og velvildar.

„En efst er mér þó í huga þakklæti fyrir mjög kær persónuleg kynni. Fyrir hönd starfsfólks Seðlabankans votta ég fjölskyldu Davíðs samúð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum
Fréttir
Í gær

Konur í Sósíalistaflokknum hjóla í Sönnu – Hafi lýst yfir stuðningi við einstakling sem kærður er til lögreglu vegna fjárdráttar

Konur í Sósíalistaflokknum hjóla í Sönnu – Hafi lýst yfir stuðningi við einstakling sem kærður er til lögreglu vegna fjárdráttar
Fréttir
Í gær

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra
Fréttir
Í gær

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Í gær

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning
Fréttir
Í gær

Alræmdasti raðmorðingi Rúmeníu laus og orðinn TikTok stjarna – Afhöfðaði mann og kastaði hausnum í stöðuvatn

Alræmdasti raðmorðingi Rúmeníu laus og orðinn TikTok stjarna – Afhöfðaði mann og kastaði hausnum í stöðuvatn
Fréttir
Í gær

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk