fbpx
Laugardagur 07.febrúar 2026
Fréttir

17 ára piltur lést í slysinu í gærkvöldi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 6. febrúar 2026 13:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöld, en hann var farþegi í bifreið sem var ekið austur Miklubraut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálpræðishersins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og er líðan hans eftir atvikum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Kyrrðarstund verður haldin í Árbæjarkirkju klukkan 16 í dag vegna slyssins.

„Séra Þór Hauksson leiðir stundina og Guðmundur organisti leikur undir. Gestum gefst kostur á að tendra kerti í friði og hljóðri minningu. Kyrrðarstundin hefst kl. 16:00 og eru allir hjartanlega velkomnir,” segir í færslu sem birtist á Facebook-síðu Árbæjarkirkju í hádeginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Háttsettur rússneskur hershöfðingi særður eftir skotárás í Moskvu

Háttsettur rússneskur hershöfðingi særður eftir skotárás í Moskvu
Fréttir
Í gær

Landsréttur ógilti dóminn í auðkýfingsmálinu – Héraðsdómur þarf að dæma konurnar aftur

Landsréttur ógilti dóminn í auðkýfingsmálinu – Héraðsdómur þarf að dæma konurnar aftur
Fréttir
Í gær

Pétur Gautur afar ósáttur við stuðningsheimili á Njálsgötu – „Hræðilegt tilraunaverkefni sem engan endi tekur“

Pétur Gautur afar ósáttur við stuðningsheimili á Njálsgötu – „Hræðilegt tilraunaverkefni sem engan endi tekur“