fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
Fréttir

Landsréttur hafnar kröfu um varðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 16:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúa í Vestmannaeyjum verða ekki hepptir í gæsluvarðhald í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri í síðustu viku. Frá þessu greinir Lögreglan á Suðurlandi en Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands sem á þriðjudaginn hafnaði kröfu lögreglu um gæsluvarðhald.

Landsréttur taldi að ekki væru lengur fyrir hendi rannsóknarhagsmunir sem styðja kröfu um gæsluvarðhald. Að sögn lögreglunnar hafa skýrslutökur og rannsóknaraðgerðir farið fram undanfarna daga.

Tilkynning lögreglu er eftirfarandi:

„Héraðsdómur Suðurlands hafnaði á þriðjudag kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um gæsluvarðhald til föstudags vegna máls er varðar andlát í Vestmannaeyjum. Lögreglustjóri kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Skýrslutökur og rannsóknaraðgerðir hafa farið fram undanfarna daga og niðurstaða Landsréttar í dag er á þá leið að m.a. með tilliti til þess séu ekki lengur fyrir hendi rannsóknarhagsmunir sem styðja gæsluvarðhald.“

Starfsmennirnir, tvær konur, voru handteknar á mánudaginn í tengslum við rannsókn andláts konu á tíræðisaldri sem lést á hjúkrunarheimilinu í síðustu viku. Hin látna var 97 ára gömul og lést á miðvikudaginn eftir að hafa þegið líknandi meðferð á Hraunbúðum um nokkurt skeið. Fjölskyldu konunnar mun samkvæmt heimildum Vísis ekki hafa grunað að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti og hafði útför verið áætluð síðar í vikunni. Um helgina hafði þó lögreglan samband og nú hafa jarðneskar leifar konunnar verið fluttar til borgarinnar til krufningar. Rannsókn mun meðal annars beinast að því hvort andlátið tengist lyfjagjöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum
Birgir Ómar er látinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stórtapaði á því að fara ekki inn á Ísland.is

Stórtapaði á því að fara ekki inn á Ísland.is
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Trump ekki sáttur við að Clinton hjónin verði neydd til að ræða um sambandið við Epstein – „Það truflar mig“

Trump ekki sáttur við að Clinton hjónin verði neydd til að ræða um sambandið við Epstein – „Það truflar mig“