fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Fréttir

Skólameistari of lengi að kvarta

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 10:33

Mennta- og barnamálaráðuneytið er til húsa í Borgartúni,

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skólameistari í ónefndum framhaldsskóla lagði fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna breytinga á skipunartíma hans en tíminn var styttur vegna aldurs skólameistarans. Kvörtuninni var hins vegar vísað frá þar sem of langt var liðið frá umræddum breytingum.

Skólameistarinn lagði fram kvörtunina fyrr í þessum mánuði. Snýr það að ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra um að afturkalla skipunarbréf skólameistarans og gefa út um leið nýtt skipunarbréf með breyttum skipunartíma. Í kvörtuninni voru gerðar tilteknar athugasemdir við málsmeðferð mennta- og barnamálaráðuneytisins. Þá óskaði skólameistarinn þess að umboðsmaður Alþingis myndi leggja mat á það tjón sem þetta kynni að hafa ollið honum og hugsanlega skaðabótaskyldu ráðherra.

Mennta- og barnamálaráðherra skipaði skólameistarann til fimm ára. Að liðnum rúmum tveimur árum af skipunartímanum var honum tilkynnt, með bréfi 21. október 2024, að ráðherra hygðist senda skólameistaranum „leiðrétt skipunarbréf“. Þegar umrætt bréf var sent var Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra. Segir í bréfi umboðsmanns að litið hafi verið svo á að þar sem skólameistarinn yrði rúmlega 70 ára þegar skipunartíminn rynni út færi skipunin í bága við lög. Í nýju skipunarbréfi ráðherrans til skólameistarans var upphaflegur skipunartími styttur. Samhliða skipunarbréfi ráðherrans fylgdi bréf ráðuneytisins þar sem fyrri skipun skólameistarans var afturkölluð.

Ár

Í bréfi umboðsmanns Alþingis til skólameistarans er minnt á að samkvæmt lögum skuli bera kvörtun til embættisins fram innan árs frá því að stjórnsýslugerningur, sem viðkomandi kvörtun snýst um, sé til lykta leiddur. Kvörtunin hafi verið lögð fram meira en ári eftir að ákvarðanir ráðherra um breytingar á skipunartíma skólameistarans lágu fyrir og því sé ekki mögulegt að taka kvörtunina til meðferðar af hálfu embættisins.

Hvað varðar ósk skólameistarans um athugun umboðsmanns á hugsanlegri skaðabótaskyldu ráðherra tekur umboðsmaður fram í bréfinu að almennt hafi verið litið svo á að það verði að vera verkefni dómstóla fremur en umboðsmanns að fjalla um álitaefni um skaðabótaskyldu hins opinbera, enda séu þar iðulega uppi álitaefni sem krefjist sönnunarfærslu sem dómstólar séu betur í stakk búnir til að leysa úr. Þar komi meðal annars til að við úrlausn um bótaskyldu og fjárhæð skaðabóta geti skipt máli að taka og leggja mat á sönnunargildi skýrslna sem aðilar og þeir sem komu að máli fyrir hönd stjórnvalds gefa.

Þá geti önnur sönnunargögn og mat á sönnunargildi þeirra einnig skipt máli. Ef bótaréttur verði talinn vera fyrir hendi kunni einnig að reyna á öflun sönnunargagna og vandasamt mat á þeim um tjón og fjárhæð þess. Aðstaða umboðsmanns Alþingis og dómstóla til að taka slíkar skýrslur og framkvæma umrætt sönnunarmat sé ólík. Af hálfu umboðsmanns Alþingis hafi því almennt verið farin sú leið að ljúka málum þar sem áhöld séu uppi um skaðabótaskyldu stjórnvalda með vísan til þess að þar sé um að ræða réttarágreining sem eðlilegt sé að dómstólar leysi úr.

Hvað varðar hugsanlega skaðabótaskyldu bendir því umboðsmaður skólameistaranum á að skoða að leita til dómstóla og lætur þar með málinu lokið af sinni hálfu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dró að sér sjö milljónir í sumarstarfi hjá Happdrætti Háskóla Íslands

Dró að sér sjö milljónir í sumarstarfi hjá Happdrætti Háskóla Íslands
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Harður árekstur á Suðurlandi – Hópslysaáætlun virkjuð

Harður árekstur á Suðurlandi – Hópslysaáætlun virkjuð
Fréttir
Í gær

Boðar óvænt til kosninga í Danmörku

Boðar óvænt til kosninga í Danmörku
Fréttir
Í gær

Hildur afar ósátt við aðgerðaáætlun gegn offitu – „Í lagi að níða feitt fólk og niðurlægja það“

Hildur afar ósátt við aðgerðaáætlun gegn offitu – „Í lagi að níða feitt fólk og niðurlægja það“
Fréttir
Í gær

Bjarni Guðjóns hættur hjá VÍS – Á leið í framboð?

Bjarni Guðjóns hættur hjá VÍS – Á leið í framboð?
Fréttir
Í gær

Stórt fíkniefnamál fyrir dóm: Fimm menn af víetnömskum uppruna ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi

Stórt fíkniefnamál fyrir dóm: Fimm menn af víetnömskum uppruna ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi