

Þrátt fyrir að skammt sé liðið á árið eru þegar góðar líkur á að nýja Evolve3‑heyrnartólalínan frá Jabra verði meðal þeirra mest spennandi sem koma á markað árið 2026. Tæknimiðlar á borð við CNET, Headset Advisor, TechRadar og Notebookcheck hafa þegar birt fyrstu umsagnir og skilaboðin eru skýr: þetta eru heyrnartól sem gætu orðið leikbreytir á vinnumarkaðnum.
CNET bendir á að Jabra hafi tekist að ná fram óvenju góðu jafnvægi milli skýrleika í tali, hágæða ANC‑hljóðeinangrunar og þæginda og það allt án hefðbundins boom‑arms, sem áður þótti ómissandi fyrir vinnuheyrnartól. Notebookcheck.net tekur í sama streng og segir Evolve3 vera „fullkomin fyrir nútíma vinnuumhverfi“ þar sem fjarfundir, opið rými og hreyfanleiki eru alls ráðandi. Headset Advisor lýsir Evolve3‑seríunni sem „næstu kynslóð Bluetooth‑tækni“ sem byggir á vinsælu Evolve2‑línunni, en bætir verulega við hvað varðar AI‑vinnslu, hljóðgreiningu og heildarhönnun. TechRadar hrósar sérstaklega hönnuninni og segir Evolve3 vera „heyrnartól sem sameina vinnuhæfni og lúxus‑hljóð í einum pakka“, og gætu því höfðað jafnt til fyrirtækja sem neytenda.

„Við sáum strax í forpöntunum að þetta yrði vinsæl vara en þessi áhugi hefur farið langt fram úr björtustu vonum,“ segir Kristinn Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK, sem er dreifingaraðili Jabra á Íslandi. „Eftirspurnin hefur einfaldlega slegið öll met hjá okkur. Við höfum vart undan,“ bætir hann við. „ Þá er samhljómur í umsögnum tæknimiðla sem gerir það að verkum að margir í tæknigeiranum telja að Evolve3 hafi burði til að verða meðal heyrnartóla ársins 2026.” Samkvæmt Kristni eru það einkum fjórir þættir sem skýra vinsældirnar:
„Vinnurými á Íslandi hafa á síðustu árum þróast hratt í átt að opnum rýmum, sameiginlegum vinnusvæðum, rafrænum samskiptum og fjarfundum. Þar reynast Evolve3 koma einstaklega vel út,“ segir Kristinn.
„Við sjáum þarna komin á markað heyrnartól sem sameina bæði að vera fyrsta flokks fyrir nútíma vinnuumhverfi en á sama tíma hefur Evolve3 fengið fádæma lof fyrir frábæra hönnun og það er meðal annars ástæða fyrir þeim frábæru viðbrögðum sem við höfum fundið hjá viðskiptavinum okkar,“ segir Kristinn.