fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Hernaðurinn hjá Bandaríkjamönnum heldur áfram að ganga brösuglega – Eldur kom upp í stærsta skipinu

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. mars 2026 15:30

Gerald R. Ford er stærsta flugmóðurskip heims.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldur kom upp í flugmóðurskipinu Gerald R. Ford og eyðilögðust káetur sjóliða. Skipið hefur verið í Miðausturlöndum til að taka þátt í stríði Bandaríkjanna og Ísraelsmanna gegn Írönum. Nú þarf að sigla því til Krítar til viðgerðar.

Óhætt er að segja að stríðsrekstur Donald Trump Bandaríkjaforseta í Íran haldi áfram að ganga brösuglega. Stríðið hefur dregist á langinn, amerískir dátar halda áfram að falla, birgðaflutningar um Hormússund er stopp og árásir eru gerðar á bandarískar herstöðvar og innviði bandamanna í Persaflóanum. Þá hafa hefðbundnir bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu, Asíu og Ástralíu neitað að koma til aðstoðar, enda var ekkert samráð haft við þá um stríðið.

Enn eitt áfallið bættist við þegar eldur kom upp í Gerald R. Ford, risavöxnu flugmóðurskipi Bandaríkjahers, undan ströndum íran.

Skipið kom rakleitt frá stríði Bandaríkjanna í Venesúela til Íran og hefur verið á sjó í níu mánuði. Áður hefur verið greint frá því að skipverjar séu um það bil að bugast og margir þeirra hyggist ekki halda áfram í sjóhernum eftir þennan túr.

Hræðilegur mórall

Mórallinn um borð versnaði enn þegar eldurinn kom upp eins og segir í frétt breska blaðsins Independent um málið. Eldurinn kviknaði í þvottarými skipsins og tók marga klukkutíma að ná niðurlögum á honum.

Sjá einnig:

Hermenn á stærsta herskipi Bandaríkjanna sagðir við það að bugast

Tveir sjóliðar slösuðust í eldsvoðanum og káetur um 600 sjóliða eyðilögðust. Hafa þeir þurft að sofa á dýnum á gólfinu eða ofan á matarborðum síðan. Um 200 sjóliðar þurftu að fá meðferð vegna reykeitrunar og fljúga þurfti öðrum hinum slasaða á sjúkrahús.

Þrátt fyrir að stýri eða vélarkerfi skipsins hafi ekki skemmst þá er ljóst að skipið er ekki lengur hæft til þess að stunda hernað í. Þarf það að sigla því til Krítar í Miðjarðarhafinu til viðgerðar. Ekki er vitað hversu langan tíma það mun taka en ljóst er að Gerald R. Ford verður ekki notaður í hernað í bráð.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

„Ef Laufey nennir að halda þessu áfram, þá eru henni allir vegir færir“

„Ef Laufey nennir að halda þessu áfram, þá eru henni allir vegir færir“
Fréttir
Í gær

Blaðamaður Morgunblaðsins harðneitar ásökunum Dags – „Hún skellti upp úr og neitaði því“

Blaðamaður Morgunblaðsins harðneitar ásökunum Dags – „Hún skellti upp úr og neitaði því“
Fréttir
Í gær

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“

Hnikarr hneykslaður eftir að hann fékk svar frá Fjársýslunni – „Var ekki ríkisstofnun sæmandi“
Fréttir
Í gær

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust
Fréttir
Í gær

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi

Hópárásin í Túnunum: Mætti til að innheimta skuld og endaði á sjúkrahúsi