fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Nigel Farage styður nýnasista og smættar minnihlutahópa á Cameo

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. mars 2026 07:30

Farage hefur stutt nýnasistasamtök á Camero. Skjáskot/Cameo

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppljóstrun breska blaðsins The Guardian sýnir að Nigel Farage, formaður Umbótaflokksins, hefur stutt nýnasista og alls kyns hægra öfgafólk í gegnum síðuna Cameo. Þá hefur hann einnig viðhaft niðrandi orðalag um aðra kynþætti og konur og ýtt undir ruglaðar samsæriskenningar.

Cameo er vefur þar sem hægt er að kaupa sér þjónustu frægs fólks til að taka upp stutt myndbönd. Til dæmis til þess að senda afmælis eða brúðkaupskveðju.

Nigel Farage hefur verið virkur á miðlinum og tekið upp þúsundir myndbanda sem send hafa verið á fólk. Í umfjöllun The Guardian voru 4366 myndbönd Farage greind og ýmislegt óhugnanlegt komið í ljós.

Meðal annars sendi hann kveðju til nýnasista, Ben Tavener að nafni, sem fékk fangelsisdóm fyrir að taka þátt í ofbeldisfullum óspektum árið 2024.

„Mér þykir þetta leitt. Þú ert ekki einn,“ sagði Farage og að dómurinn væri fáránlegur. „Ég get bara sagt þér að halda höfðinu hátt, halda áfram að trúa á réttu hlutina, halda áfram að hegða þér á réttan hátt og að lokum, veistu eitt, Ben, að lokum sigrar hið góða hið illa.“

Sjá einnig:

34 samnemendur Nigel Farage lýsa ógeðfelldu orðalagi hans – „Hitler hafði rétt fyrir sér!“

Þá tók hann einnig upp myndband fyrir nýnasistasamtök í Kanada sem kallast Diagolon og hafa meðlimir þess notað myndbandið í áróðursherferðum sínum gegn innflytjendum.

Þá hefur hann hampað hvítum öfgamönnum í „Rhódesíu“, sem er eldra nafn á Zimbabwe, smættað bandarísku þingkonuna Alexandriu Ocasiu-Cortez á kynferðislegan hátt, smættað hinsegin fólk, aðra kynþætti og fleira.

Greint er frá því að Farage taki á bilinu 85 til 150 pund fyrir hvert myndband. Hafi hann rakað inn 374.893 pundum, eða um 63 milljónum króna á Cameo síðan hann byrjaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs

Árásin í Túnunum vegna skuldauppgjörs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“

Guðmundur Ingi snýr aftur í dag: „Ég er sannarlega til í tuskið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“

„Þá hefur þú annars vegar hann, og hins vegar mig sem litla stúlku sem hafði ekki nokkurn möguleika á því að verjast“