fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Beitti úðavopni og slökkvitæki gegn kærustu sinni

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. mars 2026 14:37

Maðurinn notaði slökkvitæki. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið dæmdur fyrir að ráðast á þáverandi kærustu sína á heimili hennar, úðað úr úðavopni á hana og sprautað úr slökkvitæki. Mánuði seinna braut hann sjónvarp á heimili hennar og kommóðu.

Þetta kemur fram í dómi yfir manninum í Héraðsdómi Reykjavíkur sem féll á mánudag, 16. mars.

Maðurinn var dæmdur fyrir þrjú atvik, það er tvær líkamsárásir og eignaspjöll, gegn konunni á heimili hennar á tímabilinu 25. nóvember árið 2023 til 29. mars árið 2024.

Hafi hann meðal annars hrint konunni í rúm, tekið hálstaki og úðað á hana úr úðavopni og slökkvitæki. Hlaut hún marbletti víða um líkamann og sprungna vör.

Lögregla var kölluð til þegar málin komu upp en hann var þá farin úr íbúðinni. Voru munir á rúi og stúi og ummerki um átök og áfengisneyslu á staðnum. Í eitt skiptið hafi kærastinn veist að henni vegna þess að hún hafi talað við vin hans og hann orðið afbrýðisamur.

Maðurinn bætti konunni eignatjónið og var það virt honum til málsbóta. En engu að síður var hann dæmdur fyrir tvær líkamsárásir og eignaspjöll. Á móti því kom hins vegar að brotin voru gegn kærustu hans, sem sagt heimilisofbeldi.

Var refsingin ákveðin 2 mánaða fangelsisdómur skilorðsbundinn til tveggja ára. Var honum jafn framt gert að greiða konunni 400 þúsund krónur í bætur og 600 þúsund í málskostnað. Einnig sínum eigin verjanda 1,2 milljónir í málsvarnarlaun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg

Segir það þvætting að til standi að rukka fyrir Reykjanesbraut og Suðurlandsveg
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust

Hvað er að gerast á Reykjanesi? Þorvaldur telur að þessi sviðsmynd sé líklegust
Fréttir
Í gær

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Í gær

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf