fbpx
Föstudagur 05.september 2025
Fréttir

Róbert segir lögregluaðgerðina á Siglufirði storm í vatnsglasi – „Bara nokkrir harðduglegir menn á fylleríi“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. september 2025 11:41

Róbert Guðfinnsson. Mynd: Arnþór Birkisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Róbert Guðfinnsson athafnamaður og Siglfirðingur segir aðgerðir lögreglunnar á Norðurlandi Eystra, sem naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, á Siglufirði í gærkvöldi hafa verið storm í vatnsglasi og gengið allt of langt. Fimm voru handteknir í aðgerðunum em Róbert segir um að ræða hóp Letta sem hafi unnið á svæðinu undanfarin ár og einfaldlega fengið sér of mikið neðan í því.

Róbert skrifar um málið í pistli á Facebook:

„Fjöldi lögreglubíla mætti í miðbæinn, þrír sérsveitarmenn vopnaðir hríðskotabyssum og jafnvel bulldóser til taks til að brjóta hurðir. Hinir ætluðu „glæpamenn“ reyndust vera Lettar sem hafa unnið hér síðustu ár. Þeir voru nýkomnir úr stuttri heimsókn heim til sín og höfðu drukkið of mikið á leiðinni norður. Einn datt illa í stiga í íbúðarhúsi á mínum vegum og sást blóðugur ráfa um bæinn. Það varð til þess að kallað var á sjúkrabíl – og skömmu síðar mætti sérsveitin.“

Róbert segir hafa verið algjörlega óþarft að hafa meðferðis tæki til að brjóta niður hurðar og málið allt með ólíkindum:

„Þrátt fyrir bulldóser og MP5 hríðskotabyssur voru allar dyr ólæstar og aðgerðin endaði með því að þrír sofandi iðnaðarmenn og tveir til viðbótar voru handteknir og leiddir út í járnum. Sá sem datt var sendur á Akureyri, skoðaður og útskrifaður eftir stutta heimsókn og nokkur spor saumuð. Þegar þetta er skrifað eru tveir enn í haldi lögreglu. Málið reyndist stormur í vatnsglasi. Engin vopn, enginn stunginn, enginn skotinn. Bara nokkrir harðduglegir menn á fylleríi.“

Komin fram úr okkur?

Róbert gerir athugasemd við fréttaflutning fjölmiðla af málinu og veltir fyrir sér hvort samfélagið sé ekki komið fram úr sér og hvort viðbrögðin hefðu verið þau sömu ef um Íslendinga hefði verið að ræða:

„Hefði sama gerst ef blóðugur Íslendingur hefði ráfað um Aðalgötuna? Eða var það þjóðerni hinna sem kallaði á sérsveitina? Okkar ágæti dómsmálaráðherra og yfirstjórn lögreglunnar mættu íhuga hvort stefna og verklag séu farin að skapa vandamál í stað þess að leysa þau. Við viljum ekki að Siglufjörður sé sviðsetning fyrir dramatískar aðgerðir sem eiga heima í kvikmyndum – heldur friðsæll bær þar sem fólk getur lifað sínu lífi í sátt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Doktor í frumulíffræði svarar því hversu mörg kynin eru

Doktor í frumulíffræði svarar því hversu mörg kynin eru
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Unglingar ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Akranesi

Unglingar ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Akranesi
Fréttir
Í gær

Lögregla var með eftirlit við heimili Snorra í nótt: Hótað og heimilisfangið opinberað

Lögregla var með eftirlit við heimili Snorra í nótt: Hótað og heimilisfangið opinberað
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr í Bítinu – „Þú þaggar ekki í okkur Dagur, svona er Dagur, þaggar, þú þaggar ekki í okkur Dagur!“

Sauð upp úr í Bítinu – „Þú þaggar ekki í okkur Dagur, svona er Dagur, þaggar, þú þaggar ekki í okkur Dagur!“
Fréttir
Í gær

Reynt að myrða fjölskylduföður á Suðurnesjum – Heyrði mikil læti fyrir utan húsið og var skömmu síðar kominn á gjörgæslu

Reynt að myrða fjölskylduföður á Suðurnesjum – Heyrði mikil læti fyrir utan húsið og var skömmu síðar kominn á gjörgæslu
Fréttir
Í gær

Bíræfinn íslenskur svikahrappur fór heim til eldri borgara og þóttist vera frá Microsoft

Bíræfinn íslenskur svikahrappur fór heim til eldri borgara og þóttist vera frá Microsoft