Þrír voru fluttir á spítala til aðhlynningar eftir illa heppnaða tónleika FM95BLÖ í Laugardalshöll í gærkvöldi. Troðningur var slíkur að fólk óttaðist um líf sitt, sumir migu á gólfið og slagsmál brutust út.
„Ég titra enn þá og er ný hætt að gráta,“ segir ein kona eftir þessa miður skemmtilegu uppákomu í Nýju Laugardalshöllinni í gær sem bar heitið „Risapartý Timmy Trumpet of Fermingarafmæli FM95BLÖ.“ En þar stigu á stokk Auðunn Blöndal, Sveppi, Steindi Jr., Herra Hnetusmjör, Jóhanna Guðrún og fleiri.
Mikil umræða hefur farið fram á samfélagsmiðlum, svo sem í grúbbunni Beauty Tips á Facebook. Einnig hafa margir birt myndbönd af troðningnum á samfélagsmiðlinum TikTok.
„Alltof mikið af fólki, leið yfir vinkonu mína,“ segir ein. „Já þetta var viðbjóður,“ segir annar.
Er skipulag tónleikanna harðlega gagnrýnt. Meðal annars þegar kom að klósettunum.
„Þau voru alls ekki með þetta reiknað út, ég þurfti að bíða í um 40 mínútur eftir klósettinu,“ segir ein. Virðist sem svo sem fólk hafi í örvæntingu sinni gengið örna sinna beint á gólfið. „Já, ég sá eina sem gafst upp á röðinni og tók niður um sig pilsið og pissaði í stiganum hliðina á röðinni og hélt síðan bara áfram með kvöldið, ógeðslegt,“ segir vitni af ófögnuði.
@stinaasa Hélt ég væri að láta lífið um tíma en lifði þetta af 🥴🫨 #fm95blö #tónleikar #íslenskt ♬ original sound – Stína
„Ég er að deyja“ má heyra einn segja í myndbandi sem hann birti af troðningnum mikla í Laugardalshöllinni.
Svipaða sögu segir fólkið á Beauty tips. „Þetta var hræðilegt, lenti í þessum troðningi, náði að klifra upp handfang á stiga til að komast út, það komst enginn neitt svo ég sá 10 manns liggjandi ofan á hvort öðru í litla stiganum,“ segir netverji þar.
Eins og áður segir enduðu þrír á bráðamóttöku til aðhlynningar vegna troðningsins. Sem betur fer allir með minniháttar áverka.
Einn netverji vill hins vegar að tónleikahaldarar verði dregnir til ábyrgðar fyrir þetta.
„Þið sem eruð með áverka (marbletti, sár o.sv.frv). Plís farið og látið gera áverkavottorð. Þið eigið allan tímann rétt á bótum fyrir þessa vanrækslu þeirra og græðgi. Ekki láta skítlega „sorry“- yfirlýsingu nægja,“ segir hann.
@heimiringii hefði geta verið skipulagt betur tbh #fyrirþig #fyrirþigsíða #fyp ♬ suara asli – Template POV/CORE – CORE MEONG 😺
Á myndböndum sést einnig að troðningurinn hefur hleypt illu blóði í suma. Brutust út slagsmál. Einnig bárust fréttir af því að einhverjir hefðu mætt vopnaðir á tónleikana.
„Vinur minn, mesta litla krútt í heimi var tekinn hálstaki og barinn af tvem/þrem gaurum inni í crowdinu af ástæðulausu, allur út í klórförum og með kúlu á andlitinu,“ segir einn.
„Festist í miðjunni, togið mig í sitthvorar áttir, týndi öllum,svo þegar ég var komin að stigunum gat ég ekkert annað gert en að stíga á greyið fólkið sem datt niður, hágrátandi aldrei öskrað jafn mikið í lífinu mínu,“ segir annar.