fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Vilja koma í veg fyrir að hörmungarnar í október endurtaki sig

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. mars 2025 09:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í raun ættu öll sveitarfélög á landinu að bregðast við með sama hætti,“ segir Einar Sveinbjörn Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Flokks fólksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Meirihlutinn í borgarstjórn mun í dag leggja fram tillögu þess efnis að gerð verði krafa um að ófaglærðir matráðar og annað starfsfólk sem ráðið er til starfa í eld­hús­um Reykja­vík­ur­borg­ar þurfi að sækja þar til gert ör­ygg­is­nám­skeið í meðferð og meðhöndl­un mat­væla áður en viðkom­andi hefja þar störf.

„Í kjölfar þeirrar alvarlegu matareitrunar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði fyrir nokkrum mánuðum síðan sem hafði alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu barna er vilji til að draga lærdóm af málinu og bæta öryggis- og gæðaferla til að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig. Tryggja verður öryggi og rétta meðhöndlun og meðferð matvæla með skilvirkri fræðslu. Skyldunámskeið myndi vera liður í að mæta þeirri þörf,“ segir í tillögu borgarfulltrúa meirihlutans.

Hátt í 50 börn veiktust eftir að hafa borðað e.coli-mengaðan mat í Mánagarði í október og eins og fram kom í fréttaskýringaþættinum Kveik í janúar hékk líf nokkurra barna á bláþræði eftir sýkinguna. Bent var á það að matráður leikskólans hefði ekki hlotið neina menntun eða fræðslu um öryggi matvæla og var orsök hópsmitsins rakin til rangs verklags við matreiðslu og geymslu á matnum sem borinn var fram.

Í grein sinni segir Einar Sveinbjörn að öryggisnámskeið af þessum toga, auk almennrar fræðslu um matseld, hafi verið haldið á vegum Reykjavíkurborgar áður. Það gerðist til dæmis árið 2022 og nefnir Einar að það hafi tekist vel „þrátt fyrir lélega mætingu“.

„Þarna skil­ur á milli hvernig þess­um mál­um er háttað núna og þess hverju til­lag­an tek­ur á – að þátt­taka á eins dags ör­ygg­is­nám­skeiði í meðferð og meðhöndl­un mat­væla sé ekki val­kvæð held­ur skylda,“ segir hann og bætir við að öryggir verkferlar séu eins og flestir vita nauðsynlegir til að hægt sé að tryggja rétta meðhöndlun á þeim mat sem bor­inn er á borð fyr­ir börn í leik­skól­um borg­ar­inn­ar.

„Í raun ættu öll sveit­ar­fé­lög á land­inu að bregðast við með sama hætti – best væri ef hægt yrði að vera með á landsvísu sam­ræmt ör­ygg­is­nám­skeið í meðferð og meðhöndl­un mat­væla þannig að öll börn á leik­skól­um lands­ins „sætu við sama borð“ hvað þetta varðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kári segir að útlitið sé dökkt: „Aðal­málið er að markaðirn­ir eru skelfi­leg­ir“

Kári segir að útlitið sé dökkt: „Aðal­málið er að markaðirn­ir eru skelfi­leg­ir“
Fréttir
Í gær

Leigðu ferðamanni bíl á sumardekkjum í október

Leigðu ferðamanni bíl á sumardekkjum í október
Fréttir
Í gær

Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“

Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“
Fréttir
Í gær

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína
Fréttir
Í gær

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“
Fréttir
Í gær

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“
Fréttir
Í gær

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“