fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

„Kvittana-veggur“ Musk átti að dásama afrek hans – Nú hverfa kvittanirnar ein af annarri

Ritstjórn DV
Mánudaginn 10. mars 2025 04:40

Elon Musk.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elon Musk, ríkasti maður heims, er í fararbroddi fyrir niðurskurðaráætlun Donald Trump. Stýrir Musk sparnaðarteyminu DOGE sem fer um víðan völl og sveiflar sparnaðarhnífnum óspart. Musk hefur sagt að hann reikni með að geta skorið útgjöld alríkisins niður um 1.000 til 2.000 milljarða dollara, óþarfa útgjöld að hans mati.

DOGE hefur staðið í ströngu við að reka opinbera starfsmenn, láta hætta ýmsum verkefnum, leggja stofnanir niður og ógilda samninga ríkisins við ýmsa aðila.

Í febrúar kynnti DOGE svokallaðan „kvittana-vegg“ til sögunnar en á honum er sparnaðinum, sem DOGE hefur náð fram með ógildingu samninga, fagnað.

En margar af þessum „kvittunum“ hafa horfið af veggnum án þess að DOGE hafi auglýst það sérstaklega. Skipta þær raunar hundruðum.

Ástæðan fyrir hvarfi þeirra er mistök á mistök ofan hafa verið gerð. Til dæmis virðist starfsfólk DOGE ekki alltaf gera greinarmun á milljónum og milljörðum, að samningar, sem DOGE segist hafa sagt upp, voru löngu runnir úr gildi og samningar sem var þegar búið að greiða að fullu.

Þegar mest var af kvittunum á veggnum, sagðist DOGE hafa sparað 16 milljarða dollara við að segja upp ýmsum samningum. The New York Times skýrir frá þessu og segir að nú séu milljarðarnir orðnir 8.

„Það er augljóst að þau skilja þetta ekki,“ sagði Eric Franklin, forstjóri Erimax, sem veitir ríkisstjórninni ráð um samningagerð og fleira því tengt, í samtali við The New York Times.

Fyrirtæki hans lenti einmitt á „kvittana-veggnum“ því DOGE sagðist hafa ógilt samning við Erimax og hafi sparað 14 milljónir dollara með því. Sá galli var á gjöf Njarðar, að samningurinn var að fullu uppfylltur 2021.

DOGE sagðist hafa sparað bandarískum skattgreiðendum rúmlega 50 milljónir dollara með því að segja einum samningi strandgæslunnar upp. Staðreyndin er að samningurinn var að fullu uppfylltur 2005 og kostnaðurinn við hann var 144.000 dollarar.

„Þetta er eins og naut í postulínsbúð. Hvernig endar það? Í algjöru rugli,“ sagði Franklin.

The New York Times segir að síðustu vikuna hafi rúmlega 1.000 samningar verið fjarlægðir af veggnum. Þeirra á meðal fimm stærstu samningarnir. Þeirra á meðal einn upp á 1,9 milljarða dollara. DOGE varð að fjarlægja hann eftir að fram kom að samningur var felldur úr gildi í nóvember þegar Joe Biden var forseti. Í öðru tilfelli sagði DOGE að samningurinn hafi verið upp á 8 milljarða dollar en í raun var hann upp á 8 milljónir dollara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Kári segir að útlitið sé dökkt: „Aðal­málið er að markaðirn­ir eru skelfi­leg­ir“

Kári segir að útlitið sé dökkt: „Aðal­málið er að markaðirn­ir eru skelfi­leg­ir“
Fréttir
Í gær

Leigðu ferðamanni bíl á sumardekkjum í október

Leigðu ferðamanni bíl á sumardekkjum í október
Fréttir
Í gær

Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“

Vopnafjarðarmálið: Jón Þór reyndi að koma sökinni á Hafdísi – „Hann hefur verið mjög duglegur sjálfur að rústa sínu mannorði“
Fréttir
Í gær

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína
Fréttir
Í gær

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“
Fréttir
Í gær

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“
Fréttir
Í gær

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“

Ekki sátt við það sem hún sá í sundi um helgina – „Mér finnst þetta ógeðslegt!“