fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Þurfa að borga fyrir ofanflóðavarnir en fá engar – Vilja að ríkið kaupi upp atvinnuhúsnæði

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 3. desember 2025 15:30

Seyðisfjörður. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staðarhaldari í náttúru- og menningarsetrinu Skálanesi vill að sveitarfélagið Múlaþing lögsæki ríkið til að láta reyna á lagalega stöðu atvinnuhúsnæðis á flóðasvæðum. Eigendur þeirra þurfa að borga en fá engar varnir. Múlaþing skoðar möguleikann á að beita sér fyrir uppkaupum á atvinnuhúsnæði á hættusvæðum á Seyðisfirði.

Málið var rætt á fundi byggðarráðs Múlaþings í gær, þriðjudag, það er eftir að erindi barst frá Ólafi Erni Péturssyni, staðarhaldara í Skálanesi, nálægt Seyðisfirði. Í bréfinu hvatti hann sveitarfélagið til að láta reyna á lagalega stöðu atvinnuhúsnæðis á hættusvæðum ofanflóða. Það varði grundvallarhagsmuni sveitarfélagsins og íbúa þess.

„Atvinnuhúsnæði á þessum svæðum ber í dag skyldu til að greiða í Ofanflóðasjóð, sjóð sem beitir fjármunum eingöngu í varnir fyrir íbúðarhúsnæði. Það er líklega ósamrýmanlegt lögum að atvinnuhúsnæði taki þátt í fjármögnun kerfis en hlýtur engar varnir,“ segir í bréfi Ólafs.

Helmingur alls atvinnuhúsnæðis sem fellur undir þessa skilgreiningu á landinu er á Seyðisfirði. Þetta hamli verðmætasköpun og brýtur niður byggðina.

Á fundinum ákvað byggðarráð að fela sveitarstjóra að fá minnisblað frá lögfræðingi um möguleika sveitarfélagsins til að beita sér fyrir uppkaupum á atvinnuhúsnæði á hættusvæðum. „Enda er málið afar mikilvægt fyrir framtíðar uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði,“ segir í bókun.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

FIFA hafnar beiðni Íran
Fréttir
Í gær

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“

Búist við hækkun stýrivaxta á morgun: „Metum það þannig að nefndin sé nauðbeygð til að hækka vexti“
Fréttir
Í gær

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás

Sjö handteknir eftir meiriháttar líkamsárás