fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Nánasti samstarfsmaður Úkraínuforseta sagði af sér og ætlar í fremstu víglínu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 29. nóvember 2025 11:01

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andriy Yermak, nánasti samstarfsmaður Volodymyr Zelensky forseta, sagði starfi sínu sem starfsmannastjóri skrifstofu forsetaembættisins, lausu í gær eftir að sjálfstæðar úkraínskar stofnanir um spillingaeftirlit gerðu húsleit heima hjá honum í tengslum við umfangsmiklar rannsóknir.

Húsleitirnar eru taldar tengjast rannsóknum á spillingu varðandi uppbyggingu orkuinnviða sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur og þegar kostað tvo ráðherra embætti sín.

Það að Yermak flæktist inn í málið hefði ekki getað komið á verri tíma fyrir Zelensky því þessi bandamaður hans stýrði sendinefnd Úkraínu sem vinnur að lausn í friðarviðræðum við Rússa sem Bandaríkjamenn stýra.

Andriy Yermak er náinn samstarfsmaður forsetans en þykir umdeildur í heimalandinu

Yermak tjáði sig loks um málið í gærkvöldi og fór mikinn. Í umfjöllun New York Post kemur fram að í torræðum skilaboðum virðist hann ætla að fara út á vígvöllinn.

„Ég ætla í fremstu víglínu og er tilbúinn öllum hefndaraðgerðum,“ sagði Yermak og lýsti yfir vonbrigðum sínum með að njóta ekki stuðnings og trausts.

„Ég er heiðvirð og góð manneskja. Ég er búinn að þjóna Úkraínu vel og vera í Kiev frá því að innrás Rússa hófst. Ég hef óbeit á þeim viðbjóði sem beinist gegn mér og enn meiri óbeit á stuðningsleysi þeirra sem vita sannleikann“ sagði Yermak enn fremur.

Þá sagðist hann ekki vilja valda Zelensky frekari vandræðum og því væri vígvöllurinn svarið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

U-beygja ekki í kortunum
Fréttir
Í gær

Ung móðir lenti í óhugnanlegri reynslu eftir fyllerí – „Af hverju get ég ekki hreyft fæturna?“

Ung móðir lenti í óhugnanlegri reynslu eftir fyllerí – „Af hverju get ég ekki hreyft fæturna?“
Fréttir
Í gær

Ferðamenn hundsuðu viðvaranir og gengu á ísnum í Kerinu – „Kannski gleypir Balroggurinn þá“

Ferðamenn hundsuðu viðvaranir og gengu á ísnum í Kerinu – „Kannski gleypir Balroggurinn þá“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“

Pizza Sveins hækkaði um nærri 6 þúsund kr. á nokkrum mínútum – „Þeir vita að þetta virkar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“

Kom að ólýsanlegum hryllingi á gistiheimili – „Hann er að éta andlitið á henni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fordómarnir flæða upp á yfirborðið hjá bandarískum þingmönnum

Fordómarnir flæða upp á yfirborðið hjá bandarískum þingmönnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn kallar eftir meira heimanámi – Segir það geta sameinað fjölskyldur

Þorsteinn kallar eftir meira heimanámi – Segir það geta sameinað fjölskyldur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fólk gapandi eftir að upplýst var um fund Miðflokks með öfgasamtökum – „Trúðarnir heimsóttu Trumpistan“

Fólk gapandi eftir að upplýst var um fund Miðflokks með öfgasamtökum – „Trúðarnir heimsóttu Trumpistan“