Ása gerir þar mótmæli hópsins Ísland, þvert á flokka að umtalsefni en hópurinn kom saman á Austurvelli á laugardag vegna stefnu stjórnvalda í málefnum hælisleitenda. Þó nokkuð hefur verið fjallað um mótmælin, til að mynda ræðu sem Brynjar Barkarson, úr hljómsveitinni ClubDub, hélt á samkomunni.
„Íslenski fáninn var áberandi á mótmælum á Austurvelli á laugardaginn þar sem rasistar komu fram og héldu tölu að því er virðist til að þétta raðirnar í þeim tilgangi að forða Íslandi frá því að verða fyrir erlendum áhrifum, hvað sem það nú þýðir. Ég vil í sjálfu sér ekki gefa málflutningi þessa fólks neitt vægi hér í þessum skrifum, þar sem ekki er hægt að taka mark á hræddu fólki sem fær útrás fyrir ótta sinn með mannfjandsamlegum málflutningi,“ segir Ása í grein sinni og beinir þeim tilmælum til hópsins að nota annan fána en þann íslenska ef halda eigi áfram sams konar mótmælafundum.
„Íslenski fáninn er þjóðfáni Íslands, allra Íslendinga. Hann táknar fjallablámann, ísinn og eldinn, frumkrafta landsins. Ætli flestir Íslendingar leggi svo ekki hver sína merkingu í fánann,“ segir Ása sem deilir sinni sýn.
„Kannski tengir einhver, en ég hvet þig sem þetta lest að segja okkur hinum frá því hvað íslenski fáninn þýðir fyrir þig. Það er eitthvað sem segir mér að fæst viljum við nota hann í mannfjandsamlegum tilgangi,“ segir hún og bætir við að fáninn minni hana á formæður og forfeður þessa lands sem komu öll einhvers staðar frá og námu hér land.
„Hér var enginn. Það bjó enginn á Íslandi fyrr en einhver kom og síðan þá hefur fólk haldið áfram að koma og fara frá eyjunni fögru hér norður í ballarhafi. Fáninn minnir mig á þetta fólk sem lifði við harða vetur og óáreiðanleg sumur, veikindi, fátækt og líf við mjög erfiðar aðstæður þar sem þótti ekki sjálfsagt að komast til manns og verða fullorðinn,“ segir hún og heldur áfram. Nefnir til dæmis sjálfstæðisbaráttu landsins, baráttu kvenna, menningu okkar og og orð eins og samstöðu.
Hún minnir að lokum á að í 12. Grein laga um þjóðfánann segi að enginn megi óvirða hann, hvorki í orði né verki og að óheimild sé að nota þjóðfánann sem einkamerki einstaklings, félags eða stofnana.
„Ef félagið sem stóð að mótmælunum ætlar að standa við það sem það boðar, um að halda fleiri samkomur í líkingu við þessa, þá vona ég að þau komi sér upp eigin merki og blandi ekki þjóðfána allra Íslendinga inn í sinn tilgang og málflutning sem elur á kynþáttamisrétti.“