fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Fréttir

Kringlan vinnur til tvennra evrópskra verðlauna fyrir Kúmen

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 14. júní 2024 15:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kringlan hlaut á dögunum tvenn evrópsk verðlaun fyrir mathöllina Kúmen sem opnaði í Kringlunni í nóvember 2022, eins og segir í fréttatilkynningu.

Verðlaunin, Transform Awards, sem eru virt og eftirsótt, voru veitt við hátíðlega athöfn í London. Kringlan ásamt mörkunar- og upplifunarstofunni M Worldwide hlaut silfurverðlaun í flokkunum Best Brand Development Project og Best Brand Experience og bar þar sigurorð af stórum alþjóðlegum vörumerkjum m.a. Vodafone og Pepsi.

Best Brand Development Project verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi mörkun og umbreytingu húsnæðis í takti við breytta stefnu, gildi eða staðfærslu á markaði. Best Brand Experience verðlaunin eru veitt fyrir frábæra upplifun gesta á staðnum.

,,Við erum afar stolt að hafa unnið til þessara stóru alþjóðlegu verðlauna. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Kringluna og Kúmen,“ segir Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar.

 ,,Það er alveg ljóst að Reykjavík var að kalla á nýjan stað til að hittast, borða og njóta. Á sama tíma er hlutverk og starfsemi verslunarmiðstöðva um allan heim að breytast þ.e. þáttur upplifunar og skemmtunar skipar æ stærri sess. Þar hittir Kúmen hitti beint í mark. Gestafjöldi hefur aukist um þriðjung eftir breytinguna og velta á veitingastöðunum hefur aukist um allt að 100%,“ segir Inga Rut.

„Við hjá Reitum erum mjög ánægð með þessi verðlaun. Þróun og umbreyting fasteigna er mikilvægur hlekkur í því hlutverki fasteignafélags að skapa umgjörð utan um samfélagið og um mannlífið í borginni. Með þessum verðlaunum er staðfest enn frekar að teymi Reita er á heimsmælikvarða í umbreytingu húsnæðis og í því að skapa frábæra upplifun gesta,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.

Breytingarnar voru unnar í náinni samvinnu Kringlunnar, Reita fasteignafélags, THG arkitekta og M Worldwide.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Guðmundur Ingi ómyrkur í máli: Dauðsfallið um síðustu helgi aðeins toppurinn á ísjakanum

Guðmundur Ingi ómyrkur í máli: Dauðsfallið um síðustu helgi aðeins toppurinn á ísjakanum
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Faðir piltsins sem lést á Stuðlum stígur fram: Spyr sig stöðugt hvernig þetta gat gerst

Faðir piltsins sem lést á Stuðlum stígur fram: Spyr sig stöðugt hvernig þetta gat gerst
Fréttir
Í gær

Vill að Ásmundur Einar axli ábyrgð og segi af sér – „Hræsnin og bullið“

Vill að Ásmundur Einar axli ábyrgð og segi af sér – „Hræsnin og bullið“
Fréttir
Í gær

Örvar lýsir skelfilegri vist í tælensku fangelsi – Kakkalakkar í klefunum, stæk hlandlykt og sofið á ísköldu gólfi án dýnu

Örvar lýsir skelfilegri vist í tælensku fangelsi – Kakkalakkar í klefunum, stæk hlandlykt og sofið á ísköldu gólfi án dýnu
Fréttir
Í gær

Dularfullt andlát konu á sjötugsaldri var í Austurborginni

Dularfullt andlát konu á sjötugsaldri var í Austurborginni
Fréttir
Í gær

Jón Gnarr skýtur hugmynd Áslaugar Örnu í kaf og leggur til aðra hugmynd

Jón Gnarr skýtur hugmynd Áslaugar Örnu í kaf og leggur til aðra hugmynd