Fréttir

Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg

Mynd

Maðurinn sem lést í vinnuslysi er hann féll af fjölbýlishúsi í byggingu í Árborg síðastliðinn þriðjudag hét Eiríkur Rúnar Eiríksson.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.

Eiríkur Rúnar varð fimmtugur í apríl.

Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Sjá einnig: Banaslys í Árborg