fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Tæpar 6,9 milljónir söfnuðust í Minningarsjóð Bryndísar Klöru

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. september 2024 10:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Afrakstur kertasölu og framlag verslanakeðja til minningar um Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem jarðsett var föstudaginn 13. september síðastliðinn, nemur 6.862.725 krónum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá aðstandendum söfnunarinnar.

Anna Björt Sigurðardóttir hafði frumkvæði að framtakinu og fékk Krónuna, Bónus, Nettó og Hagkaup til liðs við sig með skömmum fyrirvara. Hvatti hún landsmenn til að kveikja á kerti við heimili sín eftir sólsetur á föstudaginn og stilltu verslanirnar upp kertum í búðum um allt land til stuðnings ákalli Önnu.

Minningarsjóðurinn mun styðja við verkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni. Upphæðin verður lögð inn á reikning sjóðsins sem er í umsjón KPMG.

Í tilkynningunni segist Anna Björt telja þetta góða framlag nýtast vel til að hrinda fyrstu verkefnum minningarsjóðsins af stað.

„Ég er svo innilega þakklát öllum sem tóku þátt í að styrkja minningarsjóð Bryndísar Klöru með kaupum á kertum. Enn og aftur sýnum við sem þjóð að með samkennd og náungakærleik að allt er hægt. Ég er þakklát fólki fyrir að kaupa kertin og þakklát Krónunni, Bónus, Nettó og Hagkaup fyrir samstarfið og sín framlög.

 Ég veit að þessi fjárhæð mun koma sér vel og nýtast í fyrstu verkefnum minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Höldum áfram að hugsa um samfélagið okkar og við þurfum að vinna saman að því að gera kærleikann að eina vopninu í okkar samfélagi,“ segir Anna Björt Sigurðardóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Landbúnaðarháskólinn vill láta bera þýska konu út úr leiguhúsnæði

Landbúnaðarháskólinn vill láta bera þýska konu út úr leiguhúsnæði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill kemur þéttingu byggðar til varnar – „Nauðsynleg og óhjákvæmileg“

Egill kemur þéttingu byggðar til varnar – „Nauðsynleg og óhjákvæmileg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fráleitt að rugla skipulag Grafarvogs með þéttingu – „Borgarstjórnin nýja getur enn þá hætt við“

Fráleitt að rugla skipulag Grafarvogs með þéttingu – „Borgarstjórnin nýja getur enn þá hætt við“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan leitar að ökumanni á bláum jeppa – Ók á konu á rafmagnshlaupahjóli

Lögreglan leitar að ökumanni á bláum jeppa – Ók á konu á rafmagnshlaupahjóli
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Jónas Már um málþóf Sjálfstæðisflokksins – „Ég bið ekki um meira en smá fjölbreytni í dagskrána“

Jónas Már um málþóf Sjálfstæðisflokksins – „Ég bið ekki um meira en smá fjölbreytni í dagskrána“