fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
Fréttir

Leita ökumanns sem keyrði á unglingsstúlku í Kópavogi og flúði af vettvangi

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 16. ágúst 2024 12:35

Lögreglan að störfum. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú ökumanns sem ók á unglingsstúlku á Vatnsendavegi í Kópavogi, við Ögurhvarf, um klukkan 15:00 á miðvikudag.

„Stúlkan, ásamt vinkonu, var að ganga til vesturs og yfir Vatnsendaveg þegar bifreið var ekið suður götuna og á stúlkuna,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. „Hún hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og rann síðan af henni, en ökumaðurinn skeytti því engu og ók rakleiðis af vettvangi.“

Töluverð umferð var en enginn sá ástæðu til að athuga með líðan stúlkunnar.  Hún fór heim og lét foreldra sína vita. Þeir höfðu síðan samband við lögreglu. Var stúlkunni komið undir læknishendur en upplýsingar um meiðsli liggja ekki fyrir.

„Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi,“ segir í tilkynningunni. „Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið sigrun.jonasdottir@lrh.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Banaslys á Miklubraut
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sjálfsvíg ráðherrans „nánast einsdæmi í rússneskri stjórnmálasögu“

Sjálfsvíg ráðherrans „nánast einsdæmi í rússneskri stjórnmálasögu“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ferðaðist um hálfan hnöttinn til að vera viðstaddur útskrift barnabarns – Daginn eftir hvarf hann sporlaust

Ferðaðist um hálfan hnöttinn til að vera viðstaddur útskrift barnabarns – Daginn eftir hvarf hann sporlaust
Fréttir
Í gær

Kótelettan hefur safnað nærri 20 milljónum fyrir krabbameinsveik börn

Kótelettan hefur safnað nærri 20 milljónum fyrir krabbameinsveik börn
Fréttir
Í gær

Skýtur á menningu íslenskra samfélagsmiðlastjarna – „Athyglin er aðalgjaldmiðillinn og allt er notað í gróðaskyni“

Skýtur á menningu íslenskra samfélagsmiðlastjarna – „Athyglin er aðalgjaldmiðillinn og allt er notað í gróðaskyni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris Líf í samstarf við stórt íslenskt fyrirtæki – Afar ánægð með að þeir prúttuðu niður samninginn

Íris Líf í samstarf við stórt íslenskt fyrirtæki – Afar ánægð með að þeir prúttuðu niður samninginn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm