Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Þar kemur fram að djúp lægð norðaustur af landinu beini til okkar kaldri norðlægri átt. Fyrri part dags verður vindur þó yfirleitt ekki hvass og úrkoma ekki mikil en það breytist í kvöld sem fyrr segir.
„Næstu daga er svo útlit fyrir norðan óveður á landinu með kalsa úrkomu norðan- og austanlands, ýmist rigningu, slyddu eða snjókomu, en lengst af úrkomulítið sunnantil. Samkvæmt nýjustu spám mun veðrið standa linnulítið fram á aðfaranótt föstudags, en skánar þá talsvert gangi spár eftir,“ segir veðurfræðingur.
„Gefnar hafa verið út viðvaranir og þeir sem eiga eitthvað undir veðri eru hvattir til að kynna sér þær og fylgjast vel með veðurspám og veðurathugunum.“
Á þriðjudag:
Norðan og norðvestan 15-23 m/s. Slydda eða snjókoma á Norður- og Austurlandi, en rigning nærri sjávarmáli. Hiti 0 til 4 stig. Þurrt að kalla sunnantil og við vesturströndina með hita að 9 stigum yfir daginn.
Á miðvikudag:
Norðvestan og norðan 13-20, hvassast suðaustantil. Víða rigning, slydda eða snjókoma, en úrkomulítið sunnanlands. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag:
Norðvestan og norðan hvassviðri eða stormur. Úrkomulítið sunnantil og við vesturströndina, annars slydda, rigning eða snjókoma. Mikil úrkoma á Norðurlandi. Hiti 0 til 9 stig, mildast suðaustanlands.
Á föstudag:
Norðan 8-15 og skúrir eða él, en þurrt um landið sunnanvert. Hiti 2 til 12 stig, mildast syðst
Á laugardag:
Breytileg átt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt á Suður- og Vesturlandi fram eftir degi. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag:
Suðaustanátt og rigning, en þurrt að kalla norðan- og austanlands. Hlýnar í veðri.