fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Danskur almenningur býr sig undir átök – Birgja sig upp af þurrmat og vatni

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. mars 2024 04:38

Pasta er ætlað til matar, ekki til að kasta í ökumenn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danskar verslanir, sem selja útivistarbúnað, hafa að undanförnu fengið nýja tegund viðskiptavina. Þetta eru karlar og konur, sem stunda hvorki göngur né fara í útilegur, sem kaupa frostþurrkaðan mat, vatnssíur, ullarnærfatnað og fleira sem margir tengja kannski einna helst við útilegur og óbyggðaferðir. Einnig seljast pasta og hrísgrjón vel þessa dagana.

Í öðrum verslunum hefur sala á kælitöskum, sólardrifnum útvarpstækjum og plastbrúsum aukist. Sífellt fleiri Danir eru farnir að undirbúa sig undir krísuástand og jafnvel stríð. Þetta má allt rekja til Rússa og innrásar þeirra í Úkraínu og ágengni þeirra og fjandskapar í garð Vesturlanda.

Áður hafa sænsk og norsk yfirvöld sagt að ekki sé útilokað að til stríðs komi. Danski varnarmálaráðherrann hefur heldur ekki útilokað það.

Nokkrir yfirmenn í danska almannavarnarkerfinu hafa stigið fram og hvatt fólk til að undirbúa sig undir krísuástand með því að koma sér upp matar- og vatnsbirgðum til að minnsta kosti sjö daga. Yfirvöld hafa þó ekki komið með neinar slíkar ráðleggingar.

En margir hafa áhyggjur af stöðunni sem uppi er. Fæstir hafa áhyggjur af að til stríðs komi, frekar að Rússar muni gera netárásir á innviði á borð við raforku- og vatnskerfið eða eitthvað slíkt. Vitað er að ef raforkukerfið lamast dögum saman mun það hafa gríðarleg áhrif á allt samfélagið. Ekki verður hægt að dæla eldsneyti, greiðslumiðlunarkerfið mun liggja niðri og fjarskipti og netsamband lamast.

Það er þetta sem fólk er að undirbúa sig undir.

Mikil aukning hefur orðið á meðlimum svokallaðra „Preppershópa“ á Facebook en þar deilir upplýsingum og miðlar af þekkingu sinni, sem er auðvitað mismikil og misgáfuleg.

Líklegt má teljast að yfirvöld fari að gefa út leiðbeiningar til dansks almennings um hvað sé gott að eiga ef til neyðarástands kemur því sífellt fleiri stjórnmálamenn, embættismenn og fjölmiðlar kalla eftir slíkum leiðbeiningum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu