fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Heilbrigðisfulltrúi horfði á ferðamann gera þarfir sínar

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 13. janúar 2024 11:00

Íbúar eru ósáttir við lyktina. Skjáskot/Google Maps

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Austurlands var vitni að því þegar ferðamaður gerði þarfir sínar bak við verslunarmiðstöðina á Djúpavogi. Íbúar kvarta sáran yfir sóðaskap.

Verslunarmiðstöðin á Djúpavogi og bensínstöð N1 sem við hana stendur hefur verið nokkuð til umfjöllunar fjölmiðla. Ekkert salerni er í verslunarmiðstöðinni og nokkur gangspölur í næsta almenningssalerni.

Ferðamenn sem stöðva til þess að taka olíu á stöðinni gera ráð fyrir að finna salerni. Þegar þeir finna það ekki láta þeir gossa við stöðina eða á bak við verslunarmiðstöðina. Hafa íbúar lýst yfir óánægju með stæka hlandfýlu á staðnum.

Sveitarstjórn hefur þrýst ítrekað á N1 og fyrirtækin í verslunarmiðstöðinni að koma upp salernisaðstöðu en þau hafa neitað. Þetta eru Landsbankinn, ÁTVR, Íslandspóstur og Samkaup.

Ýmislegt hefur verið reynt til að koma í veg fyrir að ferðamenn láti vaða við húsið. Meðal annars að setja upp eftirlitsmyndavélar. Hefur það engu skipt.

Bensínstöðin fer

Sveitarstjórn hefur nú ákveðið að bensínstöðin verði færð. Búið er að ákveða að finna nýja staðsetningu í nýju aðalskipulagi og er sú vinna að hefjast. Að sögn Inga Ragnarssonar, sem situr í heimastjórn Djúpavogs, mun sú vinna hins vegar taka tvö eða þrjú ár.

Engu að síður er áfram þrýst á fyrirtækin í verslunarmiðstöðinni að opna almenningssalerni í húsinu. Hins vegar er vandamálið það að þrátt að verslunarmiðstöðvar séu starfsleyfisskyldar þá er ekki til nein skilgreining á verslunarmiðstöð í lögum.

„Eins og við skiljum það er ekki skilgreint hvað verslunarmiðstöð er. Það segir ekkert um hvað eigi að vera í verslunarmiðstöð þó það sé starfsleyfisskylt,“ segir Ingi sem finnst þetta skrýtið.

Hvað er verslunarmiðstöð?

Heimastjórn sendi erindi til Heilbrigðiseftirlits Austurlands í apríl síðastliðnum til að fá úr því skorið hvort fyrirtækjunum væri ekki skylt að sjá viðskiptavinum sínum fyrir salernisaðstöðu í húsnæði eins og þau eru í.

Sjá einnig:

Bensínstöðin á Djúpavogi sem gjarnan er migið á verður færð

Í svarinu kom fram að tvær verslanirnar væru starfsleyfisskyldar, Samkaup og ÁTVR, og hafi gild starfsleyfi. Í hvorugri versluninni sé hins vegar skylt að hafa salerni fyrir viðskiptavini.

„Í verslunarmiðstöðvum skulu gestir eiga greiðan aðgang að salernum skv. starfsleyfisskilyrðum. Leitað var álits Umhverfisstofnunar hvort umrætt verslunarhúsnæði gæti flokkast sem verslunarmiðstöð. Fengust þau svör að ekki sé til skilgreining á verslunarmiðstöð í íslenskum lögum og því ekki hægt að álykta um skilgreiningu á umræddu húsnæði,“ segir í bréfinu.

Fram til þessa hafa einungis stærri verslunarhúsnæði fengið sérstakt starfsleyfi sem verslunarmiðstöð, eins og Kringlan og Smáralind.

Óhreinlæti á græna svæðinu

Heilbrigðiseftirlitið hefur fengið kvartanir vegna óhreinlætis við lóð verslunarmiðstöðvarinnar. Fólk gerir þarfir sínar og notar grænt svæði við lóðina til þess.

„Heilbrigðisfulltrúi hefur verið vitni að því þegar ferðamaður gerði þarfir sínar bak við húsnæðið og staðfest hefur verið óhreinlæti á græna svæðinu,“ segir í bréfinu.

Í reglugerð um hollustuhætti segir að í eða við hverja byggingu þar sem fólk hefst við að jafnaði skuli koma fyrir hæfilegum fjölda salerna. Það á klárlega við í þessu tilfelli og telur Heilbrigðiseftirlitið því æskilegt að hafa salerni aðgengilegt fyrir viðskiptavini.

Þó að fyrirtækin hafi hingað til neitað að koma upp slíkri aðstöðu segir Ingi ekki útséð með það.

„Þau eru að reyna að koma til móts við okkur. Það er verið að vinna í því en óvíst hvað kemur út úr því,“ segir hann.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt

Dóru Björt brugðið yfir vöruhúsinu í Álfabakka – Viðstödd borgarráðsfund þar sem byggingarmagnið var samþykkt
Fréttir
Í gær

Valkyrjurnar halda ótrauðar áfram

Valkyrjurnar halda ótrauðar áfram
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Zelenskyy segir að 43.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu

Zelenskyy segir að 43.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu