fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Loftvarnarkerfum komið fyrir á byggingum í miðborg Moskvu

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 20. janúar 2023 08:00

Pantsir á þaki varnarmálaráðuneytisins í Moskvu. Mynd:Telegram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur vakið mikla athygli að loftvarnarkerfum af gerðinni Pantsir hefur verið komið fyrir á þaki bygginga í miðborg Moskvu. Þar á meðal er hús varnarmálaráðuneytisins.

Þetta sést á myndum og myndböndum sem var dreift á samfélagsmiðlum í gær og vöktu mikla athygli.

Talið er að loftvarnarkerfum hafi verið komið fyrir á fjölda opinberra bygginga í miðborginni. Einnig sýnir ein upptakan þegar Pantsir-loftvarnarkerfi er híft upp á þak átta hæða byggingar sem er í tæplega tveggja kílómetra fjarlægð frá Kreml.

The Guardian segir að hinir áhrifamiklu rússnesku herbloggarar hafi veitt þessu eftirtekt og að margir þeirra túlki þetta sem svo að yfirmenn hersins hafi áhyggjur af að árásir verði gerðar á rússneskar borgir.

Einn þessara bloggara er Alexander Kots, þekktur stríðsfréttaritari, sem starfar náið með rússneska hernum og fjallar daglega um stríðið fyrir dagblaðið KP sem er undir hæl Kremlverja. Á Telegram skrifaði hann að hann telji þetta jákvætt merki. Þetta þýði að allir átti sig á hættunni og skilji að það sé aðeins tímaspursmál hvenær ráðist verður á Moskvu og héraðið.

Pantsir-loftvarnakerfi. Mynd:Rússneska varnarmálaráðuneytið

 

 

 

 

 

Yfirvöld hafa ekki staðfest að loftvarnarkerfi hafi verið sett upp í Moskvu og því hafa þau heldur ekkert sagt um tilganginn með þessu.

Pantsir á þaki háhýsis í Moskvu. Mynd:Telegram

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á síðustu vikum hafa rússneskir fjölmiðlar skýrt frá uppsetningu S-400 langdrægra flugskeytakerfa í Moskvu. Bandaríska hugveitan Jamestown Foundation segir að S-400 og Pantsir-S1 kerfin vinni saman og sé hægt að nota þau saman til loftvarna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“