fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Alræmdur fjársvikari á sölusíðum samfélagsmiðla fær loks dóm – Stal 155 þúsund króna Gucci-veski með klækjabrögðum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. september 2023 11:30

Héraðsdómur Reykjaness

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt unga konu í fjögurra mánaða  fangelsi fyrir ítrekuð umferða- og hegningarlagabrot. Þrír mánuðir af dóminum eru skilorðsbundnir til tveggja ára en að auki er konan svipt ökurétti í þrjú ár.

Auk aksturs undir áhrifum vímuefna er konan sakfelld fyrir þjófnað og fjársvik. Stal hún meðal annars 20 þúsund króna snjallúri af heimili nokkru í maí 2021.

Það eru þó fjársvikin af sölusíðum samfélagsmiðla sem eru umfangsmest en viðkomandi er dæmd fyrir að hafa í þrígang blekkt seljendur með því segjast ætla að kaupa tiltekna vöru af þeim, mæla sér mót við seljendurna, framvísa svo skjáskoti úr heimabanka þar sem svo virðist sem greiðslan hafi verið innt af hendi inn á tiltekinn reikning og þannig fengið vöruna afhenta. Um blekkingar var að ræða því greiðslan var aldrei innt af hendi.

Þannig hafði fjársvikarinn 180 þúsund króna Iphone-síma af ótilgreindum einstaklingi, 155 þúsund króna Gucci-veski af öðrum og 12 þúsund króna tösku af enn öðrum söluaðila.

Ítrekaðar viðvaranir á sölusíðum

Þeir sem fylgjast vel með þessum sölusíðum hafa eflaust rekið augun í að ítrekað hafa komið upp sambærileg mál þar sem viðkomandi er sökuð um slík fjársvik en viðvaranirnar virðast þó duga lítið. Til að mynda var hún sökuð um að hafa svikið 350 þúsund króna af einum seljenda fyrir ekki svo löngu.

„Hún þóttist vera millifæra fyrir framan mig og sýndi mér kvittunina frá bankanum en enginn millifærsla var komin. Ég gerði þau mistök að leyfa henni að fara þar sem millifærslur geta verið lengi að koma í gegn. Það næst ekki í hana,svara engum skilaboðum og skellir á mig þegar ég reyni að hringja,“ sagði eitt fórnarlambið um viðskipti sín við þá dæmdu í einum af hinum fjölmörgu þráðum þar sem fjallað er um svik hennar.

Sú dæmda hefur átt erfitt líf en segja má að hún hafi vakið þjóðarathygli fyrir rúmum áratug þegar hún var sífellt að strjúka að heiman og ítrekað var lýst eftir henni af lögreglu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ný verslun Ormsson og HTH opnar á Norðurtorgi

Ný verslun Ormsson og HTH opnar á Norðurtorgi
Fréttir
Í gær

Sýður á eldri borgurum við Herjólfsgötu vegna saunahúss – „Við viljum að þetta fari“

Sýður á eldri borgurum við Herjólfsgötu vegna saunahúss – „Við viljum að þetta fari“
Fréttir
Í gær

KAPP og Loðnuvinnslan skrifa undir viljayfirlýsingu um nýja uppsjávarvinnslu 

KAPP og Loðnuvinnslan skrifa undir viljayfirlýsingu um nýja uppsjávarvinnslu 
Fréttir
Í gær

Fjórir menn ákærðir fyrir að frelsissvipta og misþyrma unglingi – Var pyntaður með rafmagnsvopni

Fjórir menn ákærðir fyrir að frelsissvipta og misþyrma unglingi – Var pyntaður með rafmagnsvopni
Fréttir
Í gær

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína
Fréttir
Í gær

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“

„Ég væri bara að vinna í banka eða í neyslu ef ég ætti ekki svona gott bakland“