Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af fjórum ungmennum í tengslum við rannsókn hennar á bruna í Drafnarslippnum í Hafnarfirði gærkvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Sjá einnig: Stórbruni á Strandgötu
Ungmennin voru á ferli við Drafnarslippinn um kl. 17, þau er vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.
Eitt þeirra er talið vera með sítt, rautt hár og annað var á hjóli, en frekari vitneskja um þau liggur ekki fyrir.
Upplýsingum um ungmennin, ef einhver býr yfir þeim, má enn fremur koma á framfæri í tölvupósti á netfangið norma.dogg@lrh.is