fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Fréttir

Örlagaatvik á Bústaðavegi – Dómur féll í skaðabótamáli vegna umferðarhóhapps frá 2015

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 1. febrúar 2022 19:00

Frá Bústaðavegi. Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem varð fyrir aftanákeyrslu á Bústaðavegi þann 30. nóvember árið 2015 tapaði í dag skaðabótamáli gegn Sjóvá Almennum í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Konan fékk hnykk og háls og hryggsúlu í óhappinu og stríddi eftir það við stöðuga verki og var óvinnufær.  Í febrúar árið 2016 greindist konan með krabbamein í brjósti og gekkst undir brottnám í byrjun apríl sama ár samliða uppbyggingu á brjósti.

Sjóvá almennar hafnaði kröfum konunnar um bætur vegna slyssins. Skaut konan þeirri ákvörðun til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum sem komst að sömu niðurstöðu, að ekki væri hægt að sanna að þjáningar konunnar mætti rekja til slyssins.

Konan stefndi tryggingafélaginu fyrir héraðsdóm en þar var tekist á um hvort verki konunnar mætti að einhverju leyti rekja til slyssins eða hvort þeir stöfuðu eingöngu af krabbameininu og eftirköstum meðferðarinnar.

Í álitsgerðum lækna kom fram að konan hefði erið öryrki frá árinu 2012 vegna streitueinkennar og stoðkerfisverkja. Hafi hún verið á endurhæfingarlífeyri og stundað vinnu stopult. Eftir slysið árið 2015 hafi kvartanir hennar oriðð samfelldar, stöðugar og þrálátar, ólíkt því sem áður var.

Sjóvá almennar kvöddu vélaverkfræðing fyrir dóminn sem skilaði þeirri niðurstöðu að hröðun bílsins sem ók aftan á bíl komunnar hafi verið of lítil til að geta valdið varanlegum áverka. Var bíllinn á aðeins 6 km/klst hraða.

Það var niðurstaða dómsins að orsakatengsl milli verkja konunnar og árekstursins væru ósönnuð en ljóst er að aðrar orsakir geta klárlega verið fyrir heilsuleysi hennar þegar horft er til sjúkrasögu konunnar.

Voru Sjóvá almennar sýknaðar af kröfum konunnar en málskostnaður fellur niður.

 

Dóminn má lesa hér

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“

Fær innan við 400 þúsund á mánuði eftir skatt – „Horfðu í augun á mér og segðu mér að ég sé vandamálið“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Akureyringur sem gekk við hækju átti sér einskis ills von þar til lögreglan fór mannavillt

Akureyringur sem gekk við hækju átti sér einskis ills von þar til lögreglan fór mannavillt
Fréttir
Í gær

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“

Vésteinn renndi yfir kortayfirlitið og fékk áfall – „Færslur, sem fengu hárin til að rísa“
Fréttir
Í gær

Krefjast úrbóta vegna heilsuspillandi aðstöðu lögreglunnar á Ísafirði

Krefjast úrbóta vegna heilsuspillandi aðstöðu lögreglunnar á Ísafirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi

Bak við tjöldin hjá Bergrúnu Írisi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn

Fangi ósáttur við að mega ekki fá kærustuna sína í heimsókn