fbpx
Mánudagur 14.júlí 2025
Fréttir

Heiðar Austmann tjáði sig um flökkusöguna og eyddi svo færslunni – „Af hverju eru þessi ógeð ekki send úr landi“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 2. júní 2021 13:30

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarinn sólarhring hefur orðrómur um hrottalega hópnauðgun úti á Gróttu farið á flug á samfélagsmiðlum. Um er að ræða upptöku af konu sem að fer yfir hina meintu atburðarrás og er á þá leið að sex rúmenskir karlmenn í tveimur bílum hafi numið á brott unga menntaskólastúlku í miðbænum, keyrt með hana út á Gróttu þar sem þeir hafi allir nauðgað henni. Fórnarlambið hafi svo við illan leik náð að kasta sér út úr bílnum.

DV hefur borist ábendingar um málið úr fjölmörgum áttum síðastliðinn sólarhring ásamt ásökunum um að verið sé að þagga málið niður. Ævar Pálmi Pálmason, yfirmaður kynferðsbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,  sagði í samtali við DV að lögreglan kannist ekki við að slíkt mál sé inni á borði lögreglu.

Sjá meira: Flökkusagan um hrottalega hópnauðgun á Seltjarnarnesi sögð ósönn – Hér er sagan sem er í dreifingu

Mikið hefur verið rætt um málið á samfélagsmiðlinum Twitter. Einn þeirra sem hefur rætt um málið er Heiðar Austmann, útvarpsmaður á K100. Heiðar birti fyrr í dag færslu á samfélagsmiðlinum sem var harðlega gagnrýnt af öðrum netverjum.

„Djöfull var ég reiður þegar ég heyrði þessi talskilaboð. Finnst ég heyra of oft „Rúmenar“ nú orðið í tengslum við glæpi hérlendis. Af hverju eru þessi ógeð ekki send úr landi. Schengen EES eða hvað þetta heitir, það er ekki boðlegt að þurfa að díla við svona erlent hyski,“ sagði Heiðar í færslunni en hann hefur nú eytt henni.

Skjáskot af færslunni sem Heiðar hefur nú eytt.

„Þetta er ekki afsökun fyrir fordómum sko“

Orð Heiðars hafa vakið upp mikla umræðu um rasisma og orðræðu í svona málum. „Rúmenar eru ekki hyski frekar enn nein önnur þjóð eða þjóðflokkur. Rasismi er krabbamein!“ segir til að mynda einn netverji um færsluna sem Heiðar eyddi.

Heiðar kemur þá sjálfum sér til varnar og segist hafa verið að meina þessa aðila sem um er að ræða en ekki þjóðina í heild sinni. „Þessir aðilar !!!!! Enginn að ræða heila þjóð. Þetta er víst 3ja ofbeldisverk þessara aðila á stuttum tíma og því spyr ég af hverju fá ÞEIR (ekki allir Rúmenar) að fá að vera á landinu. En snúðu út úr…“ segir Heiðar.

Sami netverjinn bendir honum þá á að með því að endurtaka að hann heyri oft um „Rúmena“ sem fremja glæpi sé hann að viðhalda ákveðinni orðræðu. „Ekkert mál. Skal vanda mig betur í orðavali. Fyrir mér eru samt aðilar sem fremja svona ógeðisglæpi hyski. Menn sem þurfa að draga konur inní bíla til að nauðga þeim eru aumingjar og hyski burtséð frá þjóðerni,“ segir Heiðar þá.

Í öðrum þræði undir færslunni sem Heiðar eyddi má sjá hann og netverja takast á um málið. „Spurning að vera ekki rasisti samt? Fullt af Íslendingum beita kynferðisofbeldi, kannski jafnvel bara meirihluti gerenda á Íslandi eru íslenskir, hvert viltu reka þá? Þetta er ekki afsökun fyrir fordómum sko,“ segir sá netverji og við taka nokkuð margar færslur þar sem netverjinn og Heiðar skjóta á hvort annað.

Skjáskot af orðaskaki Heiðars og netverjans.

Ekki hefur náðst í Heiðar við gerð fréttarinnar en hún verður uppfærð ef svör berast frá honum um efnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilmundur glímdi við alvarlega heilsukvilla og breytti einu á heimilinu – „Ég varð strax léttari í líkamanum, bólgurnar minnkuðu, hreyfigetan óx, þreytan minnkaði“

Vilmundur glímdi við alvarlega heilsukvilla og breytti einu á heimilinu – „Ég varð strax léttari í líkamanum, bólgurnar minnkuðu, hreyfigetan óx, þreytan minnkaði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fimm í haldi í skotvopnamáli

Fimm í haldi í skotvopnamáli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telja að flugmennirnir hafi valdið flugslysinu sem kostaði 260 manns lífið

Telja að flugmennirnir hafi valdið flugslysinu sem kostaði 260 manns lífið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill furðaði sig á notkun orðskrípisins „kjarnorkuákvæði“ – Áttaði sig svo á því að hann var sennilega sá fyrsti sem kom því á flug

Egill furðaði sig á notkun orðskrípisins „kjarnorkuákvæði“ – Áttaði sig svo á því að hann var sennilega sá fyrsti sem kom því á flug