fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

Kristjón þvertekur fyrir fjölmiðlastríð og skýtur föstum skotum á Reyni – „Jaðrar við að hafa eltihrelli í fullri vinnu á eftir sér“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 19. nóvember 2021 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri 24.is – Þínar fréttir, þvertekur fyrir að miðill hans sé í stríði við Mannlíf í yfirlýsingu sem hann hefur birt á Facebook-vegg sínum þar sem hann skýtur jafnframt föstum skotum á ritstjóra Mannlífs, Reyni Traustason. 

Á sunnudaginn velti DV fram þeirri spurningu að fjölmiðlastríð væri í uppsiglingu á milli miðlanna tveggja, en frá því að 24.is fór í loftið hefur Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs skrifað tvo orðróma um Kristjón Kormák og samstarfsfélaga hans. Þá fjallaði miðillinn um annan starfsmann 24.is með neikvæðum hætti.

Þann 12. nóvember birtu 24.is svo frétt þar sem rætt var við aðstandendur látins manns um hvaða áhrif það hefði haft á líf þeirra að Mannlíf hafi tekið minningargrein um ástvin þeirra og gert úr henni æsifrétt. Í kjölfarið birti Reynir Traustason svo yfirlýsingu þar sem Kristjón og samstarfsmenn hans voru sakaðir um falsfréttir og ámælisverða blaðamennsku.

Sjá einnig: Fjölmiðlastríð í uppsiglingu? – Mannlíf og 24.is í hár saman – „Ámælisverður fréttaflutningur“

Kristjón vill ekki kannast við að vera í stríði, en í yfirlýsingu segir hann:

„Ekkert fjölmiðlastríð á sér stað. Og aldrei stóð til að efna til átaka með því að uppfylla langþráðan draum að stofna fjölmiðil með vinum sínum. Eitt markmiðanna er að sanna að hægt sé að reka vandaðan fjölmiðil í plús og að ævintýrið veiti öðrum kjark til að elta sína drauma.

Aldrei, já aldrei, átti ég von á því að fjölmiðlamaður sem ég bar virðingu fyrir myndi hjóla í mig persónulega og birta tvo orðróma sem enginn fótur var fyrir og níðast svo með ófyrirgefanlegum hætti á samstarfsmann, fyrir það eitt að 24.is fór í loftið.“

Kristjón segir að fyrr á þessu ári hafi hann tekið að sér ráðgjöf og greinaskrif fyrir Mannlíf að ósk Reynis og Trausta og hjálpaði þeim að tvöfalda umferð á vefsíðu miðilsins á einni viku og eins bent á að nauðsynlegt væri að styrkja miðilinn með vönduðu efni.

„Tveir mánuðir liðu og ég tjáði Trausta að þetta væri orðið gott. Frá því ég afþakkaði starf á Mannlíf hef ég vart haft undan, svo jaðrar við að hafa eltihrelli í fullri vinnu á eftir sér (blikk-kall) að hafna vinnu á Mannlíf. Öllum tilboðum hafnað ég. Allt frá stöðu blaðamanns, fréttastjóra yfir í ritstjórastöðu og eignast hlut í heimasíðunni. Mannlífs. Það kom aldrei til greina að taka þátt í að fabrikera fréttir líkt og mun án efa verða færðar sönnur á með tíð og tíma. Daginn eftir tók ég tímabundnu tilboði Wikileaks til að freista þess að ná fram réttlæti í máli Julian Assange. Var það góður skóli.“

Kristjón segir að ef blaðamaður DV hefði haft samband við hann á sunnudag hefði hann strax svarað því að stríð væri hallærislegt.

„En já, ef blaðamaður DV hefði slegið á þráðinn hefði ég sagt að það væri fyrir neðan virðingu mína að ansa nokkru um mögulegt fjölmiðlastríð. Stríð eru hallærislegt fyrirbæri og í stríði staðnar þú.

Við blaðamann DV hefði ég sagt að ég vildi frekar vilja sýna ótal fjölskyldum virðingum, öllum þeim þolendum Mannlífs, sem hafa mátt þola að miðillinn grípi til þess örþrifaráðs að auka aðsókn með því að gera mat úr minningargreinum ungs fólks, jafnvel fólks sem fallið hafa fyrir eigin hendi.“

Kristjón bendir á að 24.is hafi gert umfjöllun um hvernig framganga Mannlífs í minningargreinastuldi væri að valda fjölskyldum sársauka og í stað þess að biðjast afsökunar hafi Reynir ákveðið að velta sér upp úr því að í umfjölluninni mátti finna ein mistök blaðamanns.

„Móðir steig fram og upplýsti í einlægu viðtali að umfjöllun um látinn son hennar hefði valdið miklum sársauka og sorg sem fjölskyldan glímir enn við mörgum mánuðum síðar. Móðir óskaði eftir að fréttin væri fjarlægð en fékk puttann.

Að Trausti og Reynir barmi sér í yfirlýsingu yfir mistökum blaðamanns 24.is, mistök sem sjálfsagt var að biðjast afsökunar á enda gera allir mistök í vinnunni. Fyrirgefðu Trausti.

Í stað þess að biðja móður, systur og nána frænku afsökunar þegar þær segja frá sársaukanum sem umfjöllunin hafði á ættingja er hjólað í mig. Það finnst mér sorglegt.

Sjálfhverfan er slík að þegar þolendur Mannlífs stíga fram og opna sig um afleiðingar umfjöllunar sem átti ekkert erindi til almennings, þá gráta gerendurnir, fyllast ofboðslegri reiði og heift og vorkenna svo sjálfum sér.“

Af virðingu við Brynju, Hjördísi og Hrefnu [Aðstandendur manns sem Mannlíf skrifaði æsiminningargrein um] þá hefði ég kosið að tjá mig ekki. Ég vil miklu fremur og ekkert heitar en að sjá sögu þeirra fara sem víðast.

Þeirra saga er miklu merkilegri og mikilvægari en þessi tittlingaskítur á milli mín og Reynis og Trausta.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi