fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fréttir

Sólveig Anna horfði á Guðmund í Kastljósi í gær og hló – „Og svo dirfist einhver maður að segja henni að láta sig hverfa“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 2. nóvember 2021 09:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, furðar sig á ummælum Guðmundar Baldurssonar stjórnarmanns Eflingar í Kastljósi í gær þar sem hann lýsti því yfir að rétt væri að varaformaður félagsins, Agnieszka Ewa Ziólkowska, tæki poka sinn ásamt Sólveigu og Viðari Þorsteinssyni framkvæmdastjóra.  Agnieszka hafi gert ótrúlega margt fyrir Eflingu og hafi sinnt starfi sínu með sóma. 

Sjá einnig: Starfslokasamningurinn sem Sólveig Anna vildi ekki segja stjórninni frá – Níu mánaða greiðslur eftir tveggja ára starf – „Skrifstofan er algjörlega höfuðlaus“

Sólveig Anna vekur athygli á þessu á Facebook þar sem hún fer fögrum orðum um varaformanninn sem hún segir vandaða manneskju og mikilvægan fulltrúa verkamanna af erlendum uppruna.

„Í Kastljósi í gærkvöld krafðist Guðmundur Baldursson þess að Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar, segði af sér líkt og ég hef gert.

Mér var vissulega ekki hlátur í hug en ég gat þó ekki annað en hlegið agnarsmáum hlátri þegar Guðmundur lét þessi orð falla. Ég hugsaði um „afrekalista“ hans í störfum fyrir félagið og fólkið sem tilheyrir því, og svo hvað Agnieszka hefur gert og þessvegna hló ég í örskamma stund.

Fáránleiki þess að þessi maður væri að krefjast þess að hún léti sig hverfa var svo yfirgengilegur. En auðvitað fyrst og síðast svo óbærilega ógeðslegur.“

Sólveig Anna bendir á að Agnieszka er valin af félögum Eflingar og hafi verið þeim til sóma. Áður en hún tók við sem varaformaður hafi hún árum saman barist gegn launaþjófnaði og óboðlegum vinnuaðstæðum sem trúnaðarmaður.

Agnieszka er valin af félögum sínum til að gegna stöðu varaformanns. Það hefur hún með sóma. Áður var hún trúnaðarmaður árum saman og barðist gegn launaþjófnaði og óboðlegum aðstæðum, svo sem engri salernisaðstöðu.

Hún er fyrsta konan af pólskum uppruna sem gegnir svo mikilvægu hlutverki í íslenskri verkalýðshreyfingu. Hún er fyrsti raunverulegi fulltrúi aðflutts verkafólks í verkalýðs-baráttunni. Hún þekkir allt það svívirðilega rugl sem viðgengst gagnvart aðfluttu verkafólki á eigin skinni. Allt.“

Agnieszka hafi tekið þátt í mikilli umbótavinnu innan Eflingar en auk þess bendir Sólveig Anna á – sé gífurlega mikilvægt að aðfluttir Íslendingar eigi sér fulltrúa í ábyrgðarhlutverki í einu stærsta stéttarfélagi landsins.

„Hún hefur, ásamt mér og þeim í stjórn sem raunverulega hafa viljað bæta hag alls vinnuaflsins, ekki bara hag þeirra sem líta út og tala eins og þeir sjálfir, leitt stórkostlega umbóta vinnu innan félagsins þegar kemur að því að tryggja að okkar aðfluttu félagar eigi rétt á nákvæmlega sömu þjónustu og þau okkar sem fædd eru hér.

Um það bil helmingur félagsfólks Eflingar er aðflutt fólk. Í fyrsta skipti er í ábyrgðarhlutverki manneskja sem tilheyrir þeim hópi, manneskja sem berst fyrir þennan hóp af öllu hjarta, alla leið. Og svo dirfist einhver maður að segja henni að láta sig hverfa. Ég myndi leggja til að hann skammaðist sín en ég veit af mikilli reynslu að það kann ekki.“

Eins og flestir vita þá hafa átök milli stjórnenda og starfsmanna skrifstofu Eflingar gert það að verkum að Sólveig Anna taldi sér ekki stætt á að halda áfram að gegna stöðu formanns Eflingar. Trúnaðarmenn starfsmanna hafi skrifað harðorða ályktun sem var lögð fram í vor og hafi starfsmenn á föstudag neitað að bera til baka þær sakir sem á Sólveigu eru bornar í ályktuninni.  Það var umræddur Guðmundur Baldursson sem fékk veður af ályktuninni í vor og leitaði til fjölmiðla eftir að hafa ítrekað verið neitað um að fá hana afhenta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ákærðir fyrir stórtæka framleiðslu og sölu á fíkniefnum á Kjalarnesi

Ákærðir fyrir stórtæka framleiðslu og sölu á fíkniefnum á Kjalarnesi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Enn deilt um Blóðberg: Bók með lýsingum á hópnauðgun skyldulesefni hjá ungmennum

Enn deilt um Blóðberg: Bók með lýsingum á hópnauðgun skyldulesefni hjá ungmennum
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn 12 ára stúlku

Svívirðileg brot gegn 12 ára stúlku
Fréttir
Í gær

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“

Fullyrðir að slys á Vestfjörðum hafi verið sviðsett til að hylma yfir morð – „Með duttlungum skal land byggja“
Fréttir
Í gær

Hannes ákærður fyrir kynferðisbrot í Múlaborg

Hannes ákærður fyrir kynferðisbrot í Múlaborg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er brýnt að við hættum að tala um kynlífsverkafólk og byrjum að tala við það“

„Það er brýnt að við hættum að tala um kynlífsverkafólk og byrjum að tala við það“