fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Sænska pressan fjallar um „stjörnunuddarann“ Jóhannes Tryggva – „Hann er dæmdur raðnauðgari“

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 6. október 2021 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hið sænska Aftonbladet fjallar um að Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem kallaður hefur verið Stjörnunuddarinn og hlaut fimm ára fangelsisdóm fyrir fjórar nauðganir í byrjun árs, sé kominn til Svíþjóðar þar sem hann auglýsir þjónustu sína.

DV greindi frá því í september að Jóhannes Tryggvi hafi komið fram í myndbandi sem birt er á Instagram reikningi hins sænska Kimmo, Kimmos_life, þar sem hann segist hafa stundað meðhöndlun í 21 ár.

„Ég dreg það besta, og versta úr fólki. Nú verð ég hér með vini mínum Kimmo, og við ætlum að meðhöndla til að láta þér líða betur,“ segir hann í myndbandinu.

„Við eigum lausa tíma, svo komdu og hittu mig. Kannski get ég hjálpað,“ segir Jóhannes þá að lokum.

Myndbandinu hefur nú verið eytt.

Þarf að svara fyrir fimmtu nauðgunina

Jóhannes Tryggvi er ekki nafngreindur í Aftonbladet og aðeins birt „blörruð“ mynd af honum með umfjölluninni.

Þá er rætt við Ragnhildi Eik Árnadóttur sem kærði Jóhannes Tryggva á sínum tíma en mál hennar var látið niður falla, sem og mál tuga annarra kvenna. Haft er eftir henni: „Han är en dömd serievåldtäktsman“ eða „Hann er dæmdur raðnauðgari.“

Ragnhildur, sem sjálf er lögfræðingur og starfar nú sem slíkur í Kaupmannahöfn, steig fram opinberlega í viðtali við Stundina síðasta sumar þar sem hún lýsti upplifun sinni af rannsókn málsins, viðbrögðum lögreglu og sagðist óa við því að Jóhannes væri enn að meðhöndla ungar konur.

Ragnhildur gekk á eftir máli sínu af nokkurri hörku, kærði niðurfellingu málsins til Ríkissaksóknara sem beindi því til Héraðssaksóknara að endurskoða málið, sem varð raunin. Héraðssaksóknari hefur nú gefið út ákæru í máli Ragnhildar og mun því Jóhannes þurfa að svara fyrir fimmtu nauðgunina í Héraðsdómi Reykjaness nú í haust.

„Ég var bæði reið og hrædd“

Í samtali við DV í september sagði Ragnhildur fréttir af „útrás“ Jóhannesar til Svíþjóðar hafa valdið henni vanlíðan. „Mér leið, og líður, vægast sagt ömurlega. Ég var bæði reið og hrædd og í mikilli geðshræringu,“ sagði Ragnhildur. „Tilhugsunin um að hann sé mættur til annars lands þar sem enginn þekkir til andstyggilegrar sögu hans, þar sem hann getur óheft og án eftirlits brotið á nýjum skjólstæðingum, vekur gífurlegan óhug hjá mér.“

Aftonbladet ræðir einnig við Frey Rögnvaldsson, blaðamann á Stundinni, sem hefur fjallað mikið um mál Jóhannesar Tryggva.

Þá segir að Aftonbladet hafi ítrekað reynt að ná tali af Jóhannesi Tryggva, án árangurs, og vísbendingar séu um að hann sé nú farinn frá Svíþjóð og kominn aftur til Íslands.

Jóhannes Tryggvi áfrýjaði fimm ára fangelsisdómnum og samkvæmt dagskrá Landsréttar er sú áfrýjun á dagskrá nú í byrjun október.

Aftonbladet ræðir ennfremur við lögmann Jóhannesar Tryggva, Steinberg Finnbogason, sem segir að umbjóðandi sinn neiti öllum ásökunum og sé sannfærður um að hann verði sýknaður í Landsrétti.

Stjörnunuddarinn í útrás til Svíþjóðar þrátt fyrir fimm ára fangelsisdóm í janúar – „Ég dreg það besta, og versta úr fólki“

Stjörnunuddarinn Jóhannes Tryggvi dæmdur – Fimm ára fangelsi fyrir nauðganir

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald