Tæplega þúsund manns eru nú í sóttkví á Akureyri en 78 hafa greinst þar undanfarna daga með COVID-19. Skólastarf hefur raskast mikið og íþróttamóti sem halda átti um helgina hefur nú verið frestað. Alls eru 1969 einstaklingar í sóttkví á landinu í dag.
Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri aðgerðarstjórn hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra segir stöðuna ekki góða í samtali við Vísi. „Staðan hjá okkur er ekki góð. Við erum með rúmlega níutíu smit í gangi í augnablikinu í umdæminu. Þar af eru tæp áttatíu hérna á Akureyri og þúsund manns tæplega í sóttkví. Á Húsavík erum við líka með fimm smit en þar eru um tvö hundruð aðilar rúmlega í sóttkví.“
Samkvæmt Hermanni eru flestir hinna smituðu á grunnskólaaldri.
„Hópurinn sem er fjölmennastur í dag er börn og unglingar og þá sérstaklega þau sem eru óbólusett á aldrinum 8-12 ára. Þannig að við höfum verið að mælast til þess að þeir sem hafi með íþróttir, félagsstarfsemi, tómstundir já, fyrir börn og unglinga hugi að því að setja þær samverustundir til hliðar núna fram á næsta mánudag til að geta bara kveðið þetta niður sem við vonumst til að sé hægt.“
Hermann segir smituðu börnin ekki vera mikið veik.
„Auðvitað leggst þetta ekki vel í fólk. Menn voru alltaf farnir að hlakka til þess að við værum fanrir að sjá til lands í þessu en ég held nú svona samt að menn taki þessu almennt þannig að þetta sé svona verkefni sem þurfi að yfirstíga núna.“