fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Páll Matthíasson hættir sem forstjóri Landspítalans

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 5. október 2021 11:39

Páll Matthíasson - Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítlans, óskaði eftir því að hætta sem forstjóri Landspítala og hefur Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra orðið við þeirri ósk. Páll mun láta af embætti frá og með 11. október næstkomandi en hann hefur starfað sem forstjóri spítalans í 8 ár. Þetta kemur fram á vef Landspítalans.

Að beiðni Svandísar mun Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala, taka við stöðu forstjóra en hún mun gegna stöðunni til áramóta en þá verður skipað í embættið að nýju. Næstu mánuði mun Páll vera Guðlaugu innan handar.

Guðlaug Rakel hefur verið framkvæmdastjóri meðferðarsviðs síðan haustið 2019. Guðlaug Rakel er fædd árið 1961. Hún brautskráðist sem hjúkrunarfræðingur árið 1986 og starfaði sem slíkur í 10 ár. Í kjölfarið sinnti hún ýmsum stjórnunarstörfum, meðal annars í lyfjageiranum, en einnig sem hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala og sviðsstjóri hjúkrunar á Landspítala. Guðlaug Rakel hefur lokið MBA-gráðu og bætt við sig þekkingu í lýðheilsuvísindum.

Hún tók við starfi framkvæmdastjóra bráðasviðs við stofnun þess árið 2009 og gegndi síðan starfi framkvæmdastjóra flæðisviðs frá 2014 til 2019.

„Spítalinn hefur aldrei verið öflugri en nú“

Svandís þakkar Páli fyrir samstarfið. „Landspítali er risavaxinn vinnustaður þar sem fengist er við öll flóknustu verkefnin sem á reynir í heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Það er gríðarmikið verkefni að stjórna þessum spítala við venjulegar aðstæður, hvað þá við einhverjar erfiðustu aðstæður sem hugsast getur eins og í heimsfaraldri,“ segir hún.

Þakklæti er efst í huga hjá Páli á þessum tímamótum en hann er bæði þakklátur starfsfólki spítalans og fjölmörgum samstarfsstofnunum hans. „Spítalinn hefur aldrei verið öflugri en nú með skýra heilbrigðisstefnu og reynsluna af baráttunni við heimsfaraldur í farteskinu. Framundan eru áskoranir á næstu árum, samfara gríðarlegri uppbyggingu sem þarf að haldast í hendur við trygga mönnun. Á þessum tímapunkti tel ég því viðeigandi að nýr forstjóri taki við stjórn spítalans,“ segir Páll.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Í gær

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi