Nýjasta umfjöllun fréttarskýringarþáttarins Kveiks hefur vakið hörð viðbrögð og það án þess að þátturinn hafi einu sinni verið sýndur, en hann er á dagskrá RÚV rétt eftir klukkan átta í kvöld.
Í þættinum verður annars vegar fjallað um einstakinga sem ekki hafa látið bólusetja sig og hins vegar, og það er þessi umfjöllun sem vakið hefur reiði, er fjallað um offitu barna á landsbyggðinni á Íslandi.
Samkvæmt kynningarumfjöllun Kveiks um þátt kvöldsins hafa niðurstöður skimana í grunnskólum barna hér á landi bent til þess að sífellt fleiri börn glími við offitu. Á höfuðborgarsvæðinu sé tæplega fjórðungur yfir kjörþyngd en hlutfallið sé enn hærra utan höfuðborgarsvæðisins. Í þættinum er rætt við Tryggva Helgason, barnalækni og sérfræðing í offitu barna, og Ásu Sjöfn Lórensdóttur, fagstjóra hjá heilsuvernd skólabarna.
Eins er farið hvernig meirihluti átta ára aðgerðaráætlun stjórnvalda í þessum málaflokk hafi ekki komist til framkvæmda hvað börn varðar og að landlæknir hafi sent heilbrigðisráðherra minnisblað í janúar til að vekja athygli á umfangi vandans.
Af viðbrögðum netverja má merkja að þeim þyki umfjöllun Kveiks til þess fallin að ala á fitufordómum sem og fordómum gegn börnum á landsbyggðinni.
Tíunda hvert barn utan höfuðborgarsvæðis með offitu https://t.co/W4FyDCZqsJ Þessi fréttatilkynning er full af fordómum gagnvart landsbyggðinni og fitusmánar börn. Ótrúleg fréttamennska eða hitt þó heldur!!
— Asa Eythors (@Asgerdur) October 5, 2021
einmitt, ekki bara fitufordómar heldur landsbyggðafordómar – gripið í það sem "allir vita" að er að úti á landi:.. voða lítið um ferskvöru, meiri fátækt og lægra menntunarstig.. give me a break.
— Dagný Reykjalín (@dreykjalin) October 5, 2021
Talandi um fitufordóma þá er þessi fréttaskýring Kveiks fyrir neðan allar hellur. Börnin eru fitusmánuð og svo eru fordómar gagnvart landsbyggðinni yfir og allt um kring. Ömurð. https://t.co/W4FyDCZqsJ
— Asa Eythors (@Asgerdur) October 5, 2021
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, segir að Kveik hefði veirð nær að fjalla um fitufordóma innan heilbrigðiskerfisins og hvernig þeir ógni heilsu fólks og velferð.
Enginn nennir að fjalla um það hvað fitufordómar innan heilbrigðiskerfisins eru mikil ógn við heilbrigði okkar og velferð. Nei, við skulum gera enn einn æsifréttaþáttinn um það að feit börn eigi ekki að eiga tilverurétt 🙃 https://t.co/uLFKH8rd6i
— Tara Margrét V. (@taramv87) October 4, 2021
muna að horfa ekki á á kveik á morgun þar sem á að fitufordæma börn og landsbyggðina
— Helga Lilja (@Hellil) October 4, 2021
Undirbúa mig fyrir að flýja út af kaffistofunni á morgun þegar það verður farið að ræða Kveik pic.twitter.com/7n8DBGhqnX
— Inga, MSc. ♀️ (@irg19) October 4, 2021
Samkvæmt þessum stuðli er ég ekki í “ofþyngd” heldur “offitu” hahahaha okei kannski öll þyngdin sem ég ber á bakinu fyrir að vera funny og hot as hell. EN HVER MYNDI FLOKKA MIG Í OFFITUHÓP ANNARSTAÐAR EN Á PAPPÍR? Nkl stfu https://t.co/v8NT8P1zL4 pic.twitter.com/ZIo7dgpN5i
— Kara Kristel (@karafknkristel) October 5, 2021
Eins og segir að ofan verður í þættinum rætt við Tryggva Helgason, barnalækni, í þættinum. Tryggvi hefur barist fyrir því að viðurkennt verði að offita sé orðið mikið vandamál meðal barna á Íslandi. Hann ræddi við DV um málið fyrr ár árinu þar sem hann greindi frá því að börn á Íslandi í dag glími sum við kæfisvefn, ógreinda sykursýki og jafnvel fitulifur. Hlutfall landsmanna með offitu sé hæsthér á landi meðal OECD-ríkja og í Heilsuskóla Barnaspítala hringsins séu biðlistar orðnir langir – en í heilsuskólanum er fjölskyldum kennt að takast á við þyngdarstjórnun.
Sjá umfjöllun DV frá marsmánuði: