Fyrir austan og vestan eru menn uggandi yfir afleiðingum óveðurs sem gekk yfir landið allt í gær. Gefnar voru út appelsínugular viðvaranir fyrir landið norðan- og vestanvert en fyrir sunnan og suðvestan voru viðvaranirnar gular.
Tré rifnuðu upp með rótum á Ísafirði, vegum víða um land var lokað og rúta fauk út af vegi við Hrútafirði og leituðu farþegar hennar skjóls á Hótel Laugabakka. Þá voru hús rýmd á Sauðárkróki þegar menn urðu þess varir að Sauðá væri hætt að renna. Óttuðust viðbragðsaðilar að krapastífla hefði heft flæði hennar og að búast mætti við flóði þegar hún brysti. Sem betur fer varð ekkert úr því.
Á meðal vega sem lokuðust vegna veðursins má nefna veginn milli Norður- og Suðurlands yfir Holtavörðuheiði, Snæfellsnesveg að sunnanverðu, Súðavíkurhlíðina, Flateyrarveg, Dynjandisheiði, Mjóafjarðarheiði og Fjarðarheiði.
Má kalla það heppni að sú síðastnefnda hafi lokast í gær en ekki í dag, en Norræna siglir frá Seyðisfirði í kvöld og má því búast við umtalsverðri umferð yfir Fjarðarheiði í dag. Í samtali við DV tekur Björn Ingimundarson, sveitarstjóri Múlaþings, undir þetta og bendir á að um heiðina fara ekki bara íbúar sveitarfélagsins, heldur er þar mikið um vöruflutninga og fjölmargir ferðamenn á leið í og úr Norrænu.
Göng undir Fjarðarheiði eru nú þegar á samgönguáætlun og er ráðgert að hönnunarvinna hefjist á næstu misserum. Á það hefur þó verið bent að þó verkefni lendi á samgönguáætlun séu þau ófjármögnuð og síður en svo að fullu í höfn. „Við munum ekkert draga úr okkur með það að það verði borað þarna í gegn,“ segir Björn. „Þetta verður ekkert leyst með varanlegum hætti öðruvísi en með göngum þarna í gegn.“ Að heiðin skuli lokast í september er skýr áminning um að brýn þörf sé á úrbótum.
Á Flateyri lokaðist vegna snjóflóðs vegurinn frá þorpinu og inn að Vestfjarðavegi, sem er jafnframt eina landtenging íbúanna þar við umheiminn. Nokkuð algengt er að snjóflóð falli á Flateyrarveg sem er þar af leiðandi lokaður í þó nokkuð marga daga á ári. Hafa heimamenn bent á að forsenda fyrir frekari uppbyggingu á atvinnutækifærum þar séu öruggari samgöngur á landi. Er þá horft til þess að vegstæðið verði jafnvel flutt neðar þar sem það er hægt og uppbygging frekari varnargarða með fram honum.
Sömu sögu er að segja af veginum um Súðavíkurhlíð. Hlíðin er alræmt snjóflóðasvæði og hefur lítið verið bætt úr skák undanfarin ár. Á meðfylgjandi myndum má sjá flóðið sem féll rétt utan við Súðavík í gær. Myndina tók Jónatan Ásgeirsson sem var þá á leið í vinnu inn á Ísafjörð, en hann er sjómaður. „Þetta var bara svakalegt flóð þarna, og grjótið í þessu!“ sagði Jónatan við blaðamann DV. Jónatan segist vera orðinn ýmsu vanur, en átti þó ekki von á að tefjast á leið sinni til vinnu í september. Þegar Vegagerðin hafði rutt leið í gegnum flóðið mátti sjá háa skafla á hvorri hlið. Jónatan segir þá að minnsta kosti á þriðju mannhæð. „Kannski fimm metrar eða svo.“
„Þeir urðu að bíða eftir mér strákarnir í svona 40 mínútur,“ segir Jónatan að lokum. Mynd sem Jónatan tók er hér að neðan og birt með hans leyfi.
Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, tekur í sama streng og kollegi hans fyrir austan. „Þarna er einfaldlega viðvarandi snjóflóðahætta allan heila veturinn og þetta verður bara ekkert leyst nema með Álftafjarðargöngum,“ segir Birgir og vísar til hugmynda um göng á milli Álftafjarðar og Skutulsfjarðar, sem myndu tryggja öruggan heilsársveg á milli Ísafjarðar og Súðavíkur og áfram til Reykjavíkur. „Þetta er orðið eitt atvinnusvæði, svo ekki sé minnst á tenginguna við Reykjavík.“
Í byrjun árs 2020 féll flóð á hús á Flateyri með þeim afleiðingum að unglingsstúlka grófst undir snjó í svefnherbergi sínu. Hún náðist út, þökk sé vasklegri framgöngu björgunarsveitarinnar í bænum. Fjölskyldan býr ekki lengur í bænum.
Þá segir Birgir að nú séu fyrirhugaðar framkvæmdir á Flateyri við að auka gildi varnargarðanna sem reistir voru ofan við Flateyri eftir flóðin 1995, sem og að efla varnir ofan við Flateyrarveg. Ofanflóðasjóður greiðir fyrir snjóflóðavarnir við byggð, en Vegagerðin fyrir varnir ofan við vegi.
Birgir segir aðgerðirnar við Flateyrarveg skemur á veg komnar en aðgerðirnar fyrir ofan byggð, en segir það þó verkefni hans og bæjarins að pressað verði á að í það verði farið sem allra fyrst.
Snjóflóðið sem féll á varnargarð ofan við Flateyri í gær. Mynd/Veðurstofan