fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Glúmur slæst í hóp með Ingó Veðurguði og Sverri vínsala – Hyggst kæra Sindra feminísta- – „Ég læt ekki tala svona um mig og dóttur mína“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 29. september 2021 21:50

Glúmur Baldvinsson ætlar að berjast við femínista á öllum vígstöðvum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnmálaleiðtoginn Glúmur Baldvinsson hyggst sækja Sindra Þór Hilmars – og Sigríðarson, femínista og markaðsstjóra, til saka fyrir svæsin ummæli sem hinn síðarnefndi lét falla á Twitter-síðu sinni fyrr í dag.

Sindri Þór hefur í nógu að snúast varðandi yfirvofandi kröfur og kærur því hann var einn fimm einstaklinga sem fengu kröfubréf frá Ingólfi veðurguð Þórarinssyni fyrr í sumar. Þá hefur vín- og gullsalinn Sverrir Einar Eiríksson einnig sent Sindra kröfubréf þar sem meiðyrðamálsókn er hótað vegna ummæli á samfélagsmiðlinum.

Allt er þegar þrennt er og nú virðist Glúmur ætla að bætast við hina heilögu þrenningu sem sækja ætla femínistann til saka.

Ætlar að berjast um borgina

Allt byrjaði þetta út af yfirlýsingu Glúms, vígmóðum eftir Alþingiskosningarnar, þar sem hann tilkynnti að næsti bardagi hans og skoðanasystkina yrði um stjórnartaumana í höfuðborginni. „Kæru vinir, tíminn líður hratt og því þarf að hefja undirbúning fyrir orrustuna um Reykjavíkurborg hið fyrsta,“ skrifaði Glúmur á Facebook-síðu sína.

„Í bígerð er að stofna flokk sem mun kallast Flokkurinn (enn þá bara vinnunafn, hann má kallast allt annað enda ákveðið af flokksmönnum),“ skrifaði leiðtoginn.

Stefna Flokksins yrði að berjast gegn réttrúnaði, skorti á húsnæði fyrir lítt efnað fólk og ungt fólk, sóun á almannafé borgarbúa og síðast en ekki síst að hefja viðspyrnu gegn hugmyndum um að útrýma einkabílnum.

Síðasta baráttumálið virtist þó æsa andstæðinga Glúms upp.

„Ég óska sérstaklega eftir að fá til liðs við flokkinn þá karlmenn sem hafa verið kúgaðir af femínisma,“ skrifaði Glúmur ennfremur í herkvaðningunni.

Að minnsta kosti fór þetta í taugarnar á Sindra Þór Hilmars- og Sigríðarsyni, sem starfar eins og áður segir sem markaðsstjóri Tjarnarbíós, sem er í eigu Reykjavíkurborgar.

„Já, hann er sonur pabba síns, blessaður. Ætli hann hafi líka skrifað grafískar lýsingar til barns um að ríða konunni sinni, já eða níðst á dóttur sinni, eða áreitt konur, eða…
Djöfull eru þeir feðgar, Glúmur og Jón Baldvin, ómerkilegir,“ skrifaði Sindri á Twitter-síðu sína.

Lætur ekki tala svona um dóttur sína

Við þessum níðskrifum brást Glúmur hinn versti við.

„Kæru vinir, um leið og ég viðraði þann möguleika að berjast gegn núverandi borgarstjórn réttrúnaðar og ofbeldisfemínisma skrifar maður að nafni Sindri Þór Hilmars-Sigríðarsson eftirfarandi status að neðan um mig og mína fjölskyldu. Og dóttur. Sigríðarson starfar sem markaðsstjóri Tjarnarbíós. Sem er styrkt af Degi Eggertssyni borgarstjóra. Og borgarstjórn er full af fólki sem þessum eins og Hildi Lillendahl sem dreifa viðbjóði um landsmenn án þess að borgarstjóri láti það sig varða,“ skrifaði Glúmur og virtist færast allur í aukanna.

„Þessi ummæli gera mig enn ákveðnari í að blása til framboðs og sóknar gegn vitfirringunni og ofbeldinu sem þar fær að líðast. Það er einsog borgarstjórn sanki að sér svona liði til starfa. Ég læt ekki tala svona um mig og dóttur mína án þess að sækja viðkomandi til saka og spurja kunningja minn og borgarstjóra Dag Eggertsson hvort honum þyki þetta í boði.Hér að neðan má sjá hvað maðurinn styrktur af borgarstjóra sagði um mig og mína fjölskyldu og einkadóttur.“

Hér má lesa tíst Sindra Þórs

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum
Fréttir
Í gær

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans
Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta