fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Ammoníaksleki frá íslenskum togara á Kanaríeyjum – „Sem betur fer eru allir heilir“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 29. september 2021 18:00

Togarinn Ernir í höfninni í Las Palmas. Skjáskot Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Togarinn Ernir, sem leigður er út af Íslendingum en siglir undir þjóðfána Afríkuríkisins Belís, hefur nú verið kyrrsettur við höfnina í Las Palmas, höfuðborginni á Gran Canary, vegna ammóníaksleka sem kom upp í skipinu. Frá þessu greindi miðillinn Spanishports í gær.

Slökkvilið var kallað til vegna slyssins og eru tveir menn sagðir hafa slasast lítillega vegna lekans, fengu brunasár.

Samkvæmt frétt Stundarinnar frá því í desember er togarinn gerður út í Namibíu og hafa útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason og fyrrverandi starfsmaður Glitnis banka, Elmar Svavarsson, leigt togarann út. Útgerðarstjóri skipsins er Hlynur Þórisson og staðfesti hann frétt spænska hafnarfréttamiðilsins í samtali við DV.

Hafnaryfirvöld í borginni hafa kyrrsett Erni en samkvæmt Hlyni átti skipið að vera við byggju hvort eð er í gær og dag en það lagðist til hafnar í Las Palmas. Hafa skal í huga að borgin Las Palmas er annar staður en eyjan La Palma þar sem núna er mikið eldgos í gangi.

Öryggi allra tryggt

Hlynur segir í samtali við DV að ákveðin skilgreind viðbragðsáætlun fari í gang þegar atvik af þessu tagi eigi sér stað. „Staðan er bara þannig að það virðist koma upp einhver leki af ammoníaki og þá fer bara ákveðið prótókoll í gang. Það er bara tryggt öryggi allra. Það urðu þarna smávægileg meiðsl á slökkviliðsmanni en ég hef ekki nánari upplýsingar um það, nema að þetta hafi verið eitthvað lítilsháttar. Það eru allir heilir. Þannig að það er allt í góðu,“ segir Hlynur.

Hann segir að loftræsta þurfi skipið og sú vinna sé í gangi núna. „Það er í raun ekki mikið meira um þetta segja núna,“ segir Hlynur.

Aðspurður um tjón segir hann: „Að sjálfsögðu er alltaf tjón þegar svona gerist en ég get ekki svarað því hvert umfang þess er, þetta fer bara allt í allt ferli.“

Hlynur segir skipið hafa komið til Las Palmas á laugardag úr veiðiferð. „Sem betur fer sluppu allir og það er fyrir öllu,“ segir Hlynur. „Svo fer bara prótókollinn í gang hvað varðar athugun á vélbúnaði og öðru en aðalatriðið er að allir eru heilir.“

Hlynur segist aðspurður ekki vita fyrir víst hvort lekinn hafi valdið einhverjum umhverfisspjöllum á staðnum. Hann telji það þó mjög ólíklegt miðað við umfang aðgerðanna sem nú eru í gangi.

Hér fyrir neðan er myndband sem Spanishports birti af togaranum Erni:

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum
Fréttir
Í gær

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans
Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta