Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir gagnrýni Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, á starfsfólk Landspítalans ómaklega og skorar á hann að biðjast afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við Læknablaðið sem birtist nú fyrir helgi.
„Kári gerir að umtalsefni þreytu starfsfólks Landspítala og sýnir henni lítinn skilning“, skrifar Páll í pistli sem birtist hjá Vísi. Páll segir að Kára brugðist bogalistin í gagnrýni sinni. Þreytan stafi af manneklu og þeirri staðreynd að að starfsfólk Landspítala hafi neyðst til að taka á sig mikla aukavinnu í faraldrinum.
Kári sagði í viðtali við Læknablaðið að illa hafi gengið að reka Landspítalann síðan Páll tók við sem forstjóri. Gaf Kári jafnframt lítið fyrir kvartanir lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks um þreytu vegna álags. Ástæðu þreytunnar telur Kári mega rekja til skipulagsleysis og skort á góðum starfsanda.
„Ég á mjög erfitt með að hafa einhverja samúð með þeim sem tala um að þeir séu orðnir þreyttir út af þessum faraldri. Vegna þess að þegar maður vinnur þá vinnu sem maður hefur þjálfað sig í að sinna í áratugi, starf sem maður hefur valið sér, og allt í einu er þörf fyrir það, þá á að vera gaman. Menn eiga ekki að vera þreyttir“ sagði Kári og bætti við að enginn hjá íslenskri erfðagreiningu væir að kvarta undan álagi þrátt fyrir annir í faraldrinum. „Aldrei heyrðist kvörtun frá rannsóknarstofu okkar þegar við vorum að vinna á þrískiptum vöktum sjö daga vikunnar. Menn voru ánægðir. Þeir fengu að taka þátt. Þeir voru hluti af því því sem var að gerast.“
Páll segir að starfsfólk Landspítalans hafi staðið sig frábærlega og ekki sé sanngjarnt að bera saman störf starfsmanna Íslenskrar erfðagreiningar og starfsfólks Landspítalans
„Það fólk hefur staðið sig frábærlega og ég er ekki að gera lítið úr einstöku starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar, þótt ég bendi á að langtíma álag, ábyrgð og aðstæður allar eru ekki sambærilegar og ósanngjarnt að leggja að jöfnu. Landspítali getur ekki ákveðið hvenær hann tekur þátt í viðbragði heimsfaraldurs, það er hans skylda, alltaf, já alltaf. Ef það er ekki ný COVID-19 bylgja að kljást við, þá er starfsfólk spítalans í kapphlaupi til að vinna niður biðlista sjúklinga sem hafa lengst í nýjustu bylgjunni. Það er ekkert skjól.“
Páll bendir á að auk þess þá þurfi starfsfólk Landspítalans að búa við þá raunverulegu hættu að vera ákært fyrir mistök í starfi. Það sé óþolandi að fagfólk sem sé að reyna sitt besta eigi á hættu að vera „dregið fyrir dómstóla, þegar það er að gera sitt besta. Þarna verða stjórnvöld að bregða við.“
Í pistli sínum svarar Páll ítarlega viðtalinu við Kára, og segir sig tilneyddan til að gera svo. Páll segir að réttast væri að Kári bæði starfsfólk Landspítalans afsökunar.
„Þótt ég sé að sögn Kára bæði ljúfur og góður, þá get ég ekki orða bundist. Mér þykir ómaklega vegið að starfsfólki spítalans sem með eigin svita og tárum reynir að bæta fyrir sveltistefnu síðustu áratuga. Ég trúi því eiginlega ekki að það hafi verið ætlun Kára að gera það, vitandi hvernig hjarta hans slær. Hann væri maður að meiri að biðja starfsfólkið afsökunar, starfsfólk sem er hetjur þessa samfélags. Gleymum því ekki að heilbrigðiskerfið er þrátt fyrir allt búið að lyfta grettistaki og að heilbrigðisþjónusta á Íslandi er um margt framúrskarandi – þar gegnir starfsfólk Landspítala lykilhlutverki.“