fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Styrktaraðilar yfirgefa einn vinsælasta hlaðvarpsþátt landsins eftir umdeild ummæli – Hugi biðst afsökunar – „Mér urðu á mistök“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 2. september 2021 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugi Halldórsson, einn þáttastjórnenda í sport-hlaðvarpsþáttunum vinsælu The Mike Show, biðst innilega afsökunar á ummælum sem féllu í þættinum á dögunum um Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur. Þátturinn fékk á sig harða gagnrýni í kjölfarið og hafa styrktaraðilar þáttanna dregið sig úr samstarfinu.

Hugi segir umræðuna undanfarið hafa opnað augu hans fyrir þeirri eitruðu karlmennskumenningu sem ríki innan knattspyrnusamfélagsins á Íslandi.

Eitruð fótboltakarlmennska

Í þættinum sem kom út þann 20. ágúst var farið hörðum orðum um pistla sem baráttukonan Hanna Björg Vilhjálmsdóttir hafði skrifað til að vekja athygli á stöðu kynferðisbrotamála innan KSÍ, en í kjölfarið sagði formaður sambandsins, Guðni Bergsson, af sér störfum sem og öll stjórn KSÍ.

Arnar Sæberg Jónsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, skrifaði beinskeytta færslu um The Mike Show og umfjöllun þeirra um Hönnu Björgu á Twitter og í kjölfarið hafði annar notandi á Twitter, Valþór Pétursson, samband við styrktaraðila þáttanna, og fékk þau svör að hvorki Domino’s né CocaCola ætli sér að styrkja þættina áfram.

„Einhver ömurlegasti afkimi eitraðrar fótboltakarlmennsku hér á landi er hlaðvarpið The Mike Show,“ skrifar Arnar á Twitter. Hann bendir á umfjöllun þáttanna um Hönnu Björgu og furðar sig á því að samtímis því að samfélagið krefjist þess að KSÍ axli ábyrgð í málinu þá sleppi aðilar á borð við þá er standa að baki The Mike Show.

Ergo: Þessi menning í kringum fótboltann hér á landi er svo rótgróin, svo skrítin og er haldið á lofti á svo furðulegan hátt á svo rosalega mörgum stöðum að manni bara fallast hendur. Fínt að fólk axli ábyrgð hjá KSÍ – en þessir höfðingjar geta áfram rantað eins og þeim sýnist“

CocaCola og Thule segja upp kostun

Í athugasemdum við færsluna greinir Valþór nokkur Pétursson frá því að hann hafi haft samband við styrktaraðila hlaðvarpsins og greindi frá því að bæði Dominos og CocaCola hafi svarað á methraða.

Við styðjum þetta ekki og er Domino’s ekki lengur styrktaraðili þessa þáttar og höfum við einnig óvirkjað afsláttarkóðann tengdan þættinum,“ sögðu Dominos.

CocaCola og Thule hafa sagt upp þessari kostun því við teljum þáttinn ekki samrýmast okkar gildum,“ sögðu CCEP.

Mér urðu á mistök

Hugi Halldórsson er einn þáttastjórnenda birti fyrr í dag yfirlýsingu á Twitter vegna málsins þar sem hann harmar ummæli sín, taki þau til sín og ætli hann að læra af málinu.

„Undanfarið hefur gengið yfir umræða á samfélagsmiðlum eftir ummæli sem ég lét falla í hlaðvarpsþætti. Ég baðst strax afsökunar á ummælum mínum og sá á eftir þeim, mér urðu á mistök. 

Ég hef alist upp í og verið viðloðinn þennan eitraða karlmennskuheim fótboltans allt mitt líf. Án þess að gera mér grein fyrir því þá hef ég samofist menningunni sem þar ríkir. 

Undanfarið hefur samfélagsleg umræða opnað augu mín fyrir því hvernig raunveruleikinn er og hversu eitraður þessi heimur er. Þetta þarf að breytast. Við þurfum að endurhugsa allt það viðhorf sem mætir bæði stúlkum og drengjum í íþróttum. 

Ég er 4 barna faðir og er t.d. stutt síðan 6 ára gömul dóttir mín þurfi að berjast með kjafti og klóm fyrir jafnrétti á fótboltavellinum. Þannig viljum við ekki hafa það og það er nauðsynlegt að breyta þessu. Ég stend alltaf með þolendum og fordæmi hverskonar ofbeldi. Heimurinn þarf að breytast, hann mun breytast og ég ætla að byrja á mér.“ 

Í samtali við DV segir Hugi að hann skilji vel og virði ákvörðun styrktaraðila að draga sig úr samstarfinu. Hann telur þó mikilvægt að hægt sé að ná sáttum og samþykkja einlægar fyrirgefningarbeiðnir í samfélaginu. Öðruvísi verði líklega torvelt að breyta heiminum til hins betra.

Dominos sagði skilið við þáttinn fyrir nokkru síðan, ætla að færa sig yfir í Dr. Football. Ég skil og virði ákvörðun CCEP, hins vegar finnst mér mikilvægt að við kennum þá list að ná sáttum og samþykkja einlægar fyrirgefningarbeiðnir. Hvernig ætlum við að breyta þessari menningu eða heiminum til hins betra ef við getum ekki tekið fyrirgefningarbeiðnum? Í þessu máli skipta kostunaraðilar mig engu máli, þetta er persónulegt, ég ætla að einbeita mér að því að verða betri manneskja.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið

Horfni fiðluleikarinn og grunsamlega vinkonan með skuggalegu fortíðina – Gerði leigusamning um íbúð á Selfossi eftir hvarfið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans

Lýsa yfir megnri óánægju og hneykslan með ákvörðun Hæstaréttar – Ætla að greiða málskostnaðartryggingu unga öryrkjans
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“