fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
Fréttir

Ingó segir þetta vera ástæðuna fyrir því að leiðir hans og Vilhjálms skildu

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 30. júlí 2021 12:00

Ingó Veðurguð og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í morgun greindi Fréttablaðið frá því að hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson myndi ekki sjá lengur um mál Ingólfs Þórarinssonar, Ingó Veðurguðs. Líkt og flestir vita hafði Vilhjálmur sent kröfubréf á nokkra einstaklinga vegna ummæla er varða meint kynferðisbrot Ingós.

Líklega velta margir fyrir sér hvers vegna samstarf þeirra sé nú búið. Ingó hefur nú gefið sína skýringu, en hann segir ástæðuna vera að Vilhjálmur sé með svo margt á sinni könnu. Þetta segir hann í samtali við RÚV.

„Þetta er orðið aðeins yfirgripsmeira en við héldum í upphafi,” er haft eftir honum, og svo bætir hann við: „Vilhjálmur er í öðrum verkefnum, meðal annars erlendis, þannig að þetta er bara orðin of mikil vinna.”

Auk þess segir Ingó: „Við [Vilhjálmur] erum búnir að eiga samtöl síðan þetta byrjaði og að lokum ákváðum við að þetta væri of mikið, miðað við þau verkefni sem hann er í . Ég vil bara að þetta verði einhver sem getur sinnt þessu að fullu.”

Ingó segist núna vera í viðræðum við þrjár lögmannsstofur um að að fara með málin fyrir sig, og að pælingin sé að láta fleiri sjá um þessi mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Leikskólastarfsmaður játaði líkamsárás gegn fjögurra ára barni – Þurfti að líma höfuðið saman

Leikskólastarfsmaður játaði líkamsárás gegn fjögurra ára barni – Þurfti að líma höfuðið saman
Fréttir
Í gær

Báru kennsl á byssumanninn á frægri ljósmynd með gervigreind – Nokkuð óvænt kom í ljós

Báru kennsl á byssumanninn á frægri ljósmynd með gervigreind – Nokkuð óvænt kom í ljós
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tíu indverskum ferðamönnum bjargað í Svarfaðardal – Einn þeirra sokkalaus í tíu gráðu frosti

Tíu indverskum ferðamönnum bjargað í Svarfaðardal – Einn þeirra sokkalaus í tíu gráðu frosti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Handteknir fyrir að selja fjölda ólögráða ungmenna fölsuð skilríki

Handteknir fyrir að selja fjölda ólögráða ungmenna fölsuð skilríki