fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fréttir

Gunnar ósáttur: „Engin kirkja“ um jólin fyrir Íslendinga – „Ég varð fyr­ir heift­ar­leg­um von­brigðum“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 19. desember 2020 10:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nú eru jól. Þessi skemmti­legi tími árs þar sem við ger­um okk­ar besta að kveikja ljós í myrkr­inu, þar sem í út­varp­inu eru spiluð lög sem fjalla um jóla­ljós, jóla­hjól, jóla­sveina og inn á milli und­ar­lega sögu um lítið jóla­barn.“

Svona hefst pistill sem Gunnar Ingi Gunnarsson, for­stöðumaður í Loft­stof­unni Bapt­i­sta­kirkju, skrifar en pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag. Gunnar talar um tengsl Jesú Krists við jólin. „Þetta er horn­steinn von­ar­inn­ar í krist­inni trú, þetta er rót trú­ar okk­ar sem ber ávöxt í góðum verk­um í lífi krist­inna manna, þetta er upp­spretta von­ar­inn­ar. Sama hvernig aðstæður breyt­ast og annað fólk bregst er „Guð sá hinn sami í gær, og í dag og um alla ei­lífð“ eins og bók­in góða seg­ir okk­ur, og hann læt­ur okk­ur „hvílast á græn­um grund­um“, en hann er líka hjá okk­ur í gegn­um „dimma dali“,“ segir Gunnar í pistlinum.

Gunnar heldur áfram að tala um söguna af Jesú og jólunum. „Satt að segja þá vit­um við það ekki af hverju þau fengu ekki stað í heima­húsi eða gisti­heim­ili, en eitt vit­um við, að nú um 2000 árum seinna þá fögn­um við hátíðlega og minn­umst barns­ins sem fædd­ist ekki í kast­ala, held­ur var lagt í jötu, barn­inu sem var ýtt til hliðar og hugs­an­lega út­skúfað, því að þarna í skugg­an­um lá ljós heims­ins, í jöt­unni lá kon­ung­ur lífs­ins,“ segir hann.

„Þetta barn sem fædd­ist ekki inn í og sótt­ist ekki eft­ir ríki­dæmi, póli­tísku valdi eða hernaðar­valdi er barnið sem hef­ur umbreytt mann­kyns­sög­unni, sem hef­ur fengið kon­unga og keis­ara til að beygja kné sín, sem hef­ur mótað hugs­un­ar­hátt, siðferði og gildi vest­rænn­ar menn­ing­ar.“

„Ég varð fyr­ir heift­ar­leg­um von­brigðum“

Gunnar segir að það hafi ekki bara verið fyrir 2000 árum sem ljósið lá í skugganum, það sama er uppi á teningnum í ár. „Nú eru jól 2020 og við bjugg­umst svo sem við því að þau gætu mögu­lega orðið öðru­vísi en þau fyrri, þar sem þetta er jú árið 2020 og maður veit aldrei við hverju á að bú­ast,“ segir hann.

„Nú fyr­ir nokkr­um dög­um voru sett­ar nýj­ar sótt­varn­a­regl­ur, sem standa í gildi til 12. janú­ar, og ég, sem er for­stöðumaður í söfnuðinum Loft­stof­unni Bapt­i­sta­kirkju fylg­ist grannt með í þeirri von að við sem söfnuður gæt­um loks­ins komið sam­an í per­sónu, sungið sam­an, lært sam­an og fagnað fæðingu frels­ara okk­ar, en ég varð fyr­ir heift­ar­leg­um von­brigðum.“

Gunnar segir að vonbrigðin séu ekki vegna þess að samkomubannið er enn í gildi, heldur vegna þess að það gildir ekki jafnt um alla. „Bíósal­ir máttu hafa 50 manns, leik­lista­sýn­ing­ar máttu hafa 30 uppi á sviði og 50 úti í sal, og „menn­ing­ar­viðburðir“ (hvað sem það á nú að þýða) máttu hafa 50 manns en kirkj­ur máttu ein­ung­is hafa 10.“

„Ekkert svar er að fá“

Gunnar segist skilja gildið í því að skemmta sér en hann á erfitt með að skilja hvers vegna ríkisstjórnin vill leyfa fólki að koma saman í kvikmynda- og leikhúsum um jólin en ekki í kirkjum. „Kirkju­sam­kom­ur boða trú sem er horn­steinn og upp­spretta von­ar fyr­ir ákveðin hluta af þjóðinni, og eft­ir erfitt ár og dimma daga er þörf á þess­ari von,“ segir hann.

„Ekki nóg með það þá hef ég hringt á marga staði, sent net­póst á heil­brigðisráðuneytið til þess að spyrja ít­ar­leg­ar út í þetta til þess að reyna mitt besta að skilja hver í ósköp­un­um hugs­un­in að baki þess­ari ákvörðun sé en ekk­ert svar er að fá, og ekk­ert heyr­ir maður í fjöl­miðlum sem eru að spyrja út í þess­ar ákv­arðanir.“

Að lokum vill Gunnar leggja fram áskoranir. „Ég skora á Stjórn­ar­ráðið að breyta þess­ari ákvörðun eða gefa rök sem eru byggð á al­mennri skyn­semi fyr­ir því af hverju bíó, leik­list­ar­sýn­ing­ar og „menn­ing­ar­viðburðir“ séu leyfðir þessi jól en ekki kirkju­sam­kom­ur, og í sein­asta lagi vil ég skora á fjöl­miðla lands­ins til að sýna dug við að spyrja skýr­andi spurn­inga fyr­ir hag al­menn­ings í land­inu,“ segir hann.

„Takk fyr­ir tíma ykk­ar og Guð gefi ykk­ur ynd­is­leg og blessuð jól þar sem við minn­umst frels­ar­ans Jesú.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins

Bælingarmál séra Jakobs Rolland fréttist til Vatíkansins
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf

Dómsmálaráðuneytið sagði ekki upp samningi um íslenskupróf